Fara í innihald

Lee Jae Myung

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Lee Jae Myung
이재명
Lee árið 2025.
Forseti Suður-Kóreu
Núverandi
Tók við embætti
4. júní 2025
ForsætisráðherraKim Min-seok
ForveriYoon Suk-yeol
Lee Ju-ho (starfandi)
Persónulegar upplýsingar
Fæddur8. desember 1963 (1963-12-08) (62 ára)
Andong, Suður-Kóreu
StjórnmálaflokkurLýðræðisflokkurinn
MakiKim Hye-kyung (g. 1991)
Börn3
HáskóliChung-Ang-háskóli (LLB)
Gachon-háskóli (MPA)
StarfStjórnmálamaður, rithöfundur, lögfræðingur
Undirskrift

Lee Jae Myung (kóreska: 이재명; f. 22. desember 1964) er suðurkóreskur stjórnmálamaður og núverandi forseti Suður-Kóreu. Lee er lögmenntaður og var sveitarstjóri Gyeonggi-héraðs frá 2018 til 2021. Hann var frambjóðandi Lýðræðisflokksins í forsetakosningum landsins árið 2022 en tapaði naumlega fyrir frambjóðanda íhaldsmanna, Yoon Suk-yeol.

Lee, sem þá var leiðtogi stjórnarandstöðunnar, lifði af morðtilræði árið 2024 þegar hann var stunginn í hálsinn með hníf.[1]

Lee bauð sig aftur fram í forsetakosningum Suður-Kóreu árið 2025, sem voru haldnar eftir embættissviptingu Yoons. Í þetta sinn vann hann sigur og var kjörinn forseti Suður-Kóreu.[2]

Æska og menntun

[breyta | breyta frumkóða]

Lee Jae Myung fæddist 22. desember 1964 í Andong og átti mjög fátæka foreldra. Vegna menntakerfisins í landinu gat hann ekki haldið áfram námi eftir grunnskóla þar sem ríkið greiddi ekki fyrir skólagöngu framhaldsnema.[3] Faðir Lees glataði þeim litlu fjármunum sem fjölskyldan átti í fjárhættuspilum og því neyddist hann til að flýja frá Andong til Seongnam.[4]

Þótt Lee hafi þá ekki verið nógu gamall til að mega vinna samkvæmt lögum var hann ráðinn til starfa í verksmiðjum. Í æsku sinni lenti hann mörgum sinnum í vinnuslysum sem leiddu til þess að hönd hans skaðaðist varanlega.[5][6] Lee glímdi á þessum tíma við sjálfsvígshugsanir en ákvað engu að síður að ganga í kvöldskóla. Hann útskrifaðist með stúdentspróf eftir að hafa kostað sjálfan sig til náms.[5][7]

Lee gekk því næst í Chung-Ang-háskóla og nam lögfræði. Hann hlaut lögmannsréttindi árið 1986 og gekk í andófshreyfingar gegn einræðisstjórn Chun Doo-hwan forseta.[8] Lee var undir áhrifum af lögmanninum Roh Moo-hyun og lærlingi hans, Moon Jae-in, sem báðir urðu síðar forsetar Suður-Kóreu. Lee sérhæfði sig í mannréttindalögfræði.[9]

Stjórnmálaferill

[breyta | breyta frumkóða]

Borgarstjóri Seongnam og forsetakosningarnar 2017

[breyta | breyta frumkóða]
Lee Jae Myung árið 1976, þegar hann vann í verksmiðju í Seongnam.

Eftir mikið mótlæti á starfsferli sínum ákvað Lee Jae Myung að hefja feril í stjórnmálum til að knýja fram breytingar í samfélaginu. Hann gekk í Uri-flokkinn, sem þá var í ríkisstjórn, og bauð sig fram til borgarstjóra Seongnam árið 2007, en náði ekki kjöri. Lee bauð sig aftur fram til borgarstjóra árið 2007 og var í þetta sinn kjörinn. Þegar Lee varð borgarstjóri lýsti hann yfir greiðslustöðvun á skuldum borgarinnar til þess að geta varið fjármunum í félagsleg málefni.[10]

Lee klifrar yfir girðinguna fyrir utan þingið þegar herlög Suk Yeol eru lýst yfir árið 2024

Árið 2017 tók Lee þátt í forvali Lýðræðisflokksins fyrir forsetakosningar Suður-Kóreu sem haldnar voru eftir að Park Geun-hye var leyst úr embætti. Hann lenti í þriðja sæti í forvalinu á eftir Moon Jae-in.[11]

Sveitarstjóri Gyeonggi-héraðs

[breyta | breyta frumkóða]

Eftir ósigur sinn í forvalinu bauð Lee Jae Myung sig fram í kosningum til sveitarstjóra héraðsins Gyeonggi, og vann sigur.[12] Á tíma Covid-19-faraldursins hlaut Lee nokkra hylli fyrir viðbrögð sín, meðal annars við fjöldasmitum á trúarlegum samkomum.[13]

Forsetakosningarnar 2022

[breyta | breyta frumkóða]

Í júlí 2021 lýsti Lee Jae Myung yfir framboði sínu fyrir Lýðræðisflokkinn í forsetakosningum Suður-Kóreu 2022.[14] Þann 10. október 2021 lýsti flokkurinn Lee formlega forsetaefni sitt. Í þakkarræðu sinni sagðist Lee vilja stuðla að auknu jafnrétti í Suður-Kóreu.[15] Hann tapaði með naumum mun á móti íhaldsmanninum Yoon Suk-yeol en gerðist leiðtogi stjórnarandstöðunnar í forsetatíð hans.

Í febrúar 2023 var gefin út handtökuskipun gegn Lee vegna ásakana á hendur honum um spillingu í tengslum við verkefni í fasteignaþróun. Lýðræðisflokkurinn skipulagði mótmæli til stuðnings Lee og sagði handtökuskipunina merki um aukna valdboðshneigð ríkisstjórnarinnar. Handtökum stjórnarandstæðinga og leiðtoga stéttarfélaga hafði þá fjölgað.[16][17]

Morðtilræði

[breyta | breyta frumkóða]

Þann 2. janúar 2024 var Lee Jae Myung stunginn í hálsinn með hníf í ferð til Busan þar sem hann gekk á götum úti í fylgd með blaðamönnum og stuðningsfólki sínu.[18] Tilræðismaðurinn, sem var fasteignafulltrúi í fjárhagslegum erfiðleikum, gekk upp að Lee og bað hann um eiginhandaráritun áður en hann stakk hann.[19]

Lee hlaut alvarlega áverka í innri hálsbláæð og var fluttur á sjúkrahús í Busan og síðan í Seúl. Hann gekkst undir tveggja klukkustunda skurðaðgerð. Læknarnir sögðu að ef stungan hefði hæft hálssamslagæðina hefðu áverkarnir getað orðið banvænir.[20] Morðtilræðið þótti til marks um aukna ofbeldishneigð í suður-kóreskum stjórnmálum. Áður hafði verið ráðist á forseta Lýðræðisflokksins, Song Young-gil, árið 2022 og leiðtoga íhaldsflokksins, Park Geun-hye, árið 2006.[20]

Forsetakosningarnar 2025

[breyta | breyta frumkóða]
Lee Jae Myung, leiðtogi stjórnarandstöðunnar og Lýðræðisflokksins, krefst afsagnar forsetans á suður-kóreska þinginu þann 4. desember 2024.

Lee Jae Myung var aftur í framboði fyrir Lýðræðisflokkinn í forsetakosningum Suður-Kóreu þann 3. júní 2024, sem voru haldnar á undan áætlun vegna embættissviptingar Yoons Suk-yeol forseta. Lee lék lykilhlutverk í stjórnmálakreppunni sem skall á eftir tilraun Yoons til að lýsa yfir herlögum í landinu þann 3. desember 2024. Í kjölfar hennar var litið á Lee sem sigurstranglegasta frambjóðandann í forsetakosningunum 2025.[21] Hann var sýknaður af spillingarákærum í tengslum við forsetaframboð sitt árið 2022 og gat því boðið sig fram árið 2025 á vandkvæða.[22]

Stjórnmálaskoðanir

[breyta | breyta frumkóða]

Lee Jae Myung er talinn tilheyra framfarasinnaðri væng Lýðræðisflokksins. Hann hefur lýst sig fylgjandi almennum borgaralaunum.[23] Þetta var eitt helsta stefnumál hans í kosningaherferð sinni, en útgjöld til samfélagslegra málefna hafa jafnan verið mjög lág í landinu. Þessi stefna nýtur stuðnings um helmings landsmanna en hún hefur mætt harðri andspyrnu hjá íhaldssömum dagblöðum, sem eru í meirihluta í Suður-Kóreu.[24] Lee hefur jafnframt lýst því yfir að hann vilji að ungmenni verði í forgangi þegar kemur að aðgengi að íbúðarhúsnæði.[25]

Lee hefur talað fyrir réttindum ýmissa minnihlutahópa. Meðal annars hefur hann lagt áherslu á vernd kvenréttinda og réttinda hinsegin fólks.[26][27]

Lee Jae Myung hefur verið kvæntur Kim Hye-kyung frá árinu 1991.[28]

Tilvísanir

[breyta | breyta frumkóða]
  1. ↑ „Leiðtogi stjórnarandstöðunnar stunginn í hálsinn“. mbl.is. 2. janúar 2024. Sótt 24. apríl 2025.
  2. ↑ Þorgerður Anna Gunnarsdóttir (3. júní 2025). „Nýkjörinn forseti heitir því að endurreisa lýðræði og efnahag“. RÚV. Sótt 3. júní 2025.
  3. ↑ Na Un-chae (5 maí 2021). „이재명, 국민학교 성적표 공개…"고집 세고 성적 '미미'했다"“. JoongAng Daily (kóreska). Sótt 7. mars 2022.
  4. ↑ Esther Chung (10 október 2021). „Gov. Lee Jae-myung elected as DP's presidential candidate“. JoongAng Daily (enska). Sótt 7. mars 2022.
  5. 1 2 „Working-class hero? Ex-factory boy aims for South Korean presidency“. AFP (enska). 22 febrúar 2022. Sótt 7. mars 2022.
  6. ↑ Byeon Deok-ho (16 febrúar 2022). „이재명 "나도 등록 장애인…대통령이 직접 장애정책 챙기겠다"“. Maeil Kyongje (kóreska). Sótt 7. mars 2022.
  7. ↑ Kim Eun-joung (15 maí 2021). „이재명의 스승의 날 회고 "재명아, 너는 가능성이 있어"“. Chosun Ilbo (kóreska). Sótt 7. mars 2022.
  8. ↑ Andrew Salmon (12 október 2021). „In land of 'Parasite' and 'Squid Game,' a hero rises“. Asia Times (enska). Sótt 7. mars 2022.
  9. ↑ Park Kwang-yeon (2. september 2021). „이재명 "노무현 대통령이 만들어준 길 따라 여기까지 와"“. Kyunghyang Shinmun (kóreska). Sótt 7. mars 2022.
  10. ↑ Lee Jung-hyun (febrúar 2014). „"당장 갚지 않아도 될 돈인데, 서둘러 지급유예 선언"“. Chosun Ilbo (kóreska). Sótt 7. mars 2022.
  11. ↑ Ser Myo-ja (11 apríl 2016). „Split voting could boost fate of People's Party“. JoongAng Daily (enska). Sótt 7. mars 2022.
  12. ↑ Ock Hyun-ju (19 nóvember 2019). „14 mayors, governors file petition to save Lee Jae-myung's governorship“. The Korea Herald (enska). Sótt 7. mars 2022.
  13. ↑ „Gov. Lee, chief prosecutor in close race in presidential hopefuls poll“. Yonhap (enska). 13 janúar 2021. Sótt 7. mars 2022.
  14. ↑ Jung Da-min (1er juillet 2021). „Gyeonggi governor vows to tackle inequality, unfairness“. The Korea Times (enska). Sótt 7. mars 2022.
  15. ↑ Seo Young-ji (10 október 2021). „[속보] 이재명 민주당 대선후보 확정…누적 득표율 50.29%“. Hankyoreh (kóreska). Sótt 7. mars 2022.
  16. ↑ „Le PD organise un rassemblement contre la demande de mandat d'arrêt visant son chef“. Agence de presse Yonhap (franska). 17 febrúar 2023.
  17. ↑ „Corée du Sud: les arrestations de personnes accusées d'intelligence avec la Corée du Nord se multiplient“. RFI (franska). 15 febrúar 2023.
  18. ↑ „South Korean Opposition Leader Is Stabbed“. nytimes.co (english). 2 janúar 2024..
  19. ↑ France-Presse, Agence (3 janúar 2024). „Corée du Sud: le chef de l'opposition poignardé dans un état grave, la police enquête sur le mobile“. Mediapart (franska). Sótt 3 janúar 2024.
  20. 1 2 „Corée du Sud : le chef de l'opposition poignardé reste hospitalisé“. lefigaro.fr (franska). 3 janúar 2023. Sótt 3 janúar 2024..
  21. ↑ „Corée du Sud: favori pour la présidentielle, l'opposant Lee Jae-myung annonce sa candidature“. RFI (franska). 10 apríl 2025. Sótt 12 apríl 2025.
  22. ↑ „En Corée du Sud, le dirigeant démocrate Lee Jae-myung échappe à une condamnation qui aurait hypothéqué ses chances de se présenter à la présidentielle“. Le Monde (franska). 26. mars 2025. Sótt 12 apríl 2025.
  23. ↑ Nam Hyun-woo (11. september 2021). „Lee Jae-myung, a 'bulldozing public administrator' fearless of conflicts“. The Korea Times (enska). Sótt 7. mars 2022.
  24. ↑ Rocca, Nicolas (1 febrúar 2022). „En Corée du Sud, le revenu universel aux portes du pouvoir“. Le Monde diplomatique (franska).
  25. ↑ Park Nam-joo (5 ágúst 2021). „이재명 후보, '1차 청년공약' 발표··· 청년에게 연 100만원 지급“. JoongAng Daily (kóreska). Sótt 8. mars 2022.
  26. ↑ Lee Ha-na (27. desember 2021). „이재명, '낙태' 대신 '임신중지'… "임신중지에 건강보험 적용하겠다"“. Snið:Lien (kóreska). Sótt 7. mars 2022.
  27. ↑ Kwon Hye-mi (29 nóvember 2021). „이재명 "동성애, 인정해야…성적 지향 차별 안돼"“. Korea Economic Daily (kóreska). Sótt 7. mars 2022.
  28. ↑ Esther Chung (10 júní 2018). „Actress admits to affair with Lee Jae-myung“. JoongAng Daily (enska). Sótt 8. mars 2022.


Fyrirrennari:
Lee Ju-ho
(starfandi)
Forseti Suður-Kóreu
(4. júní 2025 –)
Eftirmaður:
Enn í embætti