Lamberto Dini
Útlit
| Lamberto Dini | |
|---|---|
| Forsætisráðherra Ítalíu | |
| Í embætti 17. janúar 1995 – 18. maí 1996 | |
| Forseti | Oscar Luigi Scalfaro |
| Forveri | Silvio Berlusconi |
| Eftirmaður | Romano Prodi |
| Persónulegar upplýsingar | |
| Fæddur | 1. mars 1931 Flórens, Ítalíu |
| Þjóðerni | Ítalskur |
| Stjórnmálaflokkur | RI (1996–2002) DL (2002–2007) LD (2007–2009) PdL (2009–2013) |
| Maki | Donatella Pasquali Zingone |
| Háskóli | Háskólinn í Flórens Minnesota-háskóli Michigan-háskóli |
| Undirskrift | |
Lamberto Dini (f. 1. mars 1931) er ítalskur stjórnmálamaður, fyrrum forsætisráðherra Ítalíu 1995 til 1996 og utanríkisráðherra frá 1996 til 2001. Hann lærði hagfræði og varð 1979 seðlabankastjóri hjá Banca d'Italia sem þá var seðlabanki Ítalíu. Hann gegndi því starfi til 1994 þegar hann hóf þátttöku í stjórnmálum í fyrstu ríkisstjórn Berlusconis, en eftir fall hennar 1995 fékk hann það verkefni að mynda tæknilega utanþingsstjórn. Sú stjórn naut aðeins stuðnings vinstri-miðjuflokka á þingi þá fjóra mánuði sem hún var við völd, en hægriflokkarnir undir forystu Berlusconis voru í stjórnarandstöðu. Í kosningunum 1996 bauð Dini sig fram með sér lista með Ólífubandalagi Prodis.
| Fyrirrennari: Silvio Berlusconi |
|
Eftirmaður: Romano Prodi | |||

