Fara í innihald

Lakk

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Lakk getur líka átt við fernisolíu.
Laksha er lakkvara frá Srí Lanka máluð með séllakki.

Lakk er hörð og oftast gljáandi málning sem er borin á undirlag úr viði eða málmi. Náttúrulegt lakk er gert úr trjákvoðu og vaxi og hefur þekkst frá fornöld.[1]

Lakkvara frá Asíu eru hlutir sem hafa verið lakkaðir með lakki gerðu úr kvoðu trésins Toxicodendron vernicifluum eða skyldra tegunda, þar sem lakkið er borið á í mörgum umferðum. Þannig fær hluturinn harða og gljáandi áferð sem er bæði vatnsheld og endingargóð. Stundum eru slíkir gripir skreyttir með myndum, innlögðum skeljum, eða öðrum hætti. Þetta lakk varð fyrst þekkt á Vesturlöndum vegna gripa sem bárust þangað frá Japan og er því stundum kallað „japanlakk“.[2]

Séllakk er önnur tegund af náttúrulegu lakki gerð úr kvoðu sem skjaldlýs gefa frá sér og er leyst upp í vínanda áður en það er borið á yfirborð.[3] Séllakk myndar stökka húð sem getur verið brothætt. Það hefur þekkst á Indlandi og Taílandi frá fornöld, en á 19. öld tók það við af olíu og vaxi í yfirborðsmeðhöndlun á viði (til dæmis á hljóðfærum) í Evrópu. Seinna á 19. öld tók lakk úr nítrósellulósa við af séllakki.

Nútímalakk er yfirleitt gert úr gerviefnum á borð við alkýð, akrýl, úreþan og epoxý; en litarefnið er stundum fínkornóttara en í annarri málningu til að ná fram hærra gljástigi.

Tilvísanir

[breyta | breyta frumkóða]
  1. ↑ „Urushi: All You Need to Know About Japanese Lacquer“. 5 júní 2020. Sótt 12 júní 2022.
  2. ↑ Lars Egil Helseth (26. nóvember 2026). „Japanlakk“. Store norske leksikon.
  3. ↑ Lee, John. „The Strange Ingredient Used To Make Jelly Beans Shiny“. TastingTable. Static Media.
  Þessi grein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.