Fara í innihald

Líkkista

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu

Líkkistur (eða einfaldlega kallaðar kistur) eru sérstaklega útbúnar kistur sem hýsa jarðneskar leifar fólks fyrir jarðarfarir. Elsta líkkistan sem hefur fundist er talin vera 8000 ára og uppgötvuðust þær í Henan héraðinu í Kína, en áður var talið að viðarkistur hefðu fyrst orðið hluti af útförum fyrir 6 þúsund árum.[1]

Líkkistur hafa verið gerðar úr ýmsum hráefnum, algengaat er að þær séu úr viði, en einnig eru til líkkistur úr málmi, leir, steini og jafnvel gleri. En ekki eru notaðar líkkistur í öllum útförum, því greftrunarsiðir heimsins eru fjölbreyttir.

Steinkistur

[breyta | breyta frumkóða]

Steinkista er líkkista úr steini sem notað er utan um lík. Steinkistu var komið fyrir ofanjarðar en einnig hafa fundist niðurgrafnar steinkistur. Enskt heiti yfir steinkistu er Sarcophagus og er það dregið af grísku þar sem sarco á við kjöt og phagus það sem étur kjöt. Steinkistur sem gerðar eru úr kalksteini leysa upp líkamsleifar. Elstu steinkisturnar sem hafa fundist voru notaðar fyrir Faraóa í forn Egyptalandi, í kringum 2613 f.Kr.[2]

Tilvísanir

[breyta | breyta frumkóða]
  1. ↑ „China's oldest wooden coffins uncovered at Jiahu Ruins in Henan“ (enska). The People's Goverment of Henan Province. 10. október 2025. Sótt 1. september 2026.
  2. ↑ „Sarcophagi“. National Geographic. Sótt 1. september 2026.