Fara í innihald

Kvarnir

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
stórar heyrnakvarnir úr kyrrahafsþorski
Stórar heyrnakvarnir úr kyrrahafsþorski.
þverskurður af kvörn úr silungi sem sýnir árshringina
Þverskurður af kvörn úr 18 ára gömlum silungi sem sýnir árshringina. Svörtu punktarnir eru til að merkja hvar hringirnir byrja.

Kvarnir eru kalksteinar sem hægt er að finna í höfði allra beinfiska sem eru skynfæri til að skynja hljóðbylgjur og jafnvægi. Þessar kvarnir gera fólki kleift að aldursgreina fiska á sama hátt og að telja árhringi í trjám. Kvarnirnar eru staðsettar við innra eyra fiskanna og eru þar hægt að finna 3 pör af kvörnum og fljóta í vökvafylltum hólfum.

Þessum kvörnum er safnað ásamt hreistri allan ársins hring þegar verið er að gera sýnatökur úr lönduðum afla, hvort sem það er á leiðöngrum Hafrannsóknarstofnunar eða úr veiðieftirliti um borð á fiskiskipum. Árlega er verið að aldursgreina um 81 þúsund kvarnir úr sjávarfiskum.[1]

Stóra Heyrnakvörnin

[breyta | breyta frumkóða]

Heyrnakvörnin (Sagittae) er stærst og hjálpa fiskinum að nema hljóðbylgjur og eru það þessar kvarnir sem notaðar eru til að ákvarða aldur fisksins. Þessi kvörn er í hólfi sem kallast posi (Sacculus).

Litla Heyrnakvörnin

[breyta | breyta frumkóða]

Hægt er að finna litlu heyrnakvörnina (Asteriscii) í útskoti frá posa-hólfinu sem kallast litli posi (Lagena) og vinnur hún með stærri heyrnakvörninni til að skynja hljóð.

Jafnvægiskvörnin

[breyta | breyta frumkóða]

Jafnvægiskvörnin (Lapilli) er minnst af öllum kvörnunum, og gegnir meginhlutverki sem jafnvagskyn fiskins. Þessa kvörn er að finna í hólfi sem kallast skjóða (Utriculus).

Efnasamblanda

[breyta | breyta frumkóða]

Kvarnirnar eru gerðar nánast alveg úr hörðum kalkefnablöndum (um 90%). Vöxtur kvarnar er einstefnuvöxtur, þar sem kalkið bætist á ytri hlið kvarnarinnar í mismiklu magni eftir árstíðum sem myndar einskonar árshringi.

Lögun kvarna í fiskum er misjöfn eftir tegundum

Aldursgreining

[breyta | breyta frumkóða]

Árshringirnir sem myndast í stóru heyrnakvörnunum er hægt að nota til að greina aldur fisksins þegar notast er við víðsjá og baklýsingu því þá er auðveldara að sjá muninn á dekkri hringjum sumarsins og ljósari hringi vetrar. Aðfrerðir til að greina aldur fisks getur verið mismunandi eftir tegundum, Þá eru kvarnir hjá t.d. þorsk, ýsu og ufsa sneiddar niður eða brotnar í tvennt til að geta séð hringina undir víðsjá, en flestar aðrar tegundir er hægt að skoða þær í heilu lagi undir víðsjá. Kvarnir hjá karfa þarf að brjóta og brenna yfir loga áður en hægt er að skoða þær undir víðsjá.[1]

Það er hægt að aldursgreina fiska útfrá hreistri en það er ekki eins áreiðanlegt og þegar verið er að skoða kvarnirnar, þá sérstaklega á eldri fiskum.

Tilvísanir

[breyta | breyta frumkóða]
  1. 1 2 „Kvarnir og aldursákvörðun beinfiska“. Hafrannsóknarstofnun. Sótt 17. ágúst 2026.