Krónudofra
Krónudofra | ||||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Ástand stofns | ||||||||||||||
Ekki metið
(IUCN)
| ||||||||||||||
Vísindaleg flokkun | ||||||||||||||
| ||||||||||||||
Tvínefni | ||||||||||||||
Schaereria cinereorufa (Schaer.) Th. Fr.[1] | ||||||||||||||
Samheiti | ||||||||||||||
Lecidea cinereorufa Schaer.[1] |
Krónudofra (fræðiheiti: Schaereria cinereorufa) er tegund fléttna af dofruætt.[2]
Útlit
[breyta | breyta frumkóða]Krónudofra er hrúðurflétta með reitaskipt-, vörtótt- eða bylgjótt þal. Þalið getur verið í mimsunandi brúnum lit og þalvörtur eru 0,5-1,5 mm í þvermál. Askhirslur krónudofru eru algengar, svartar 0,6-1,8 mm í þvermál með átta einhólfa glærum gróum í aski sem hvert er 7-9,5 mm í þvermál.[2]
Útbreiðsla og búsvæði
[breyta | breyta frumkóða]Krónudofra finnst á norðurheimskautasvæðinu, Evrópu og Norður-Ameríku.[1] Hún er sjaldgæf á Íslandi og er aðeins þekkt af fimm stöðum á landinu.[2]
Krónudofra vex á berum klettum eða á mosatóm á klettum.[2]
Efnafræði
[breyta | breyta frumkóða]Krónudofra inniheldur stundum fléttuefnið gýrófórinsýru.[2]
Þalsvörun krónudofru er K-, C- eða C+ bleik, KC-, P-. Askþekjan, sem venjulega er brúnsvört, brúnfjólublá eða dimmgræn litast K+ skærblá.[2]
Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ 1,0 1,1 1,2 Rambold G. (ritstj.) (2019). LIAS: A Global Information System for Lichenized and Non-Lichenized Ascomycetes (útgáfa desember 2015). Í: Species 2000 & ITIS Catalogue of Life, 29. janúar 2019 (Roskov Y., Ower G., Orrell T., Nicolson D., Bailly N., Kirk P.M., Bourgoin T., DeWalt R.E., Decock W., Nieukerken E. van, Zarucchi J. & Penev L., ritstj.). Species 2000: Naturalis, Leiden, Hollandi. ISSN 2405-8858.
- ↑ 2,0 2,1 2,2 2,3 2,4 2,5 Hörður Kristinsson (2016). Íslenskar fléttur. Reykjavík: Hið íslenska bókmenntafélag. ISBN 978-9979-66-347-8