Konur í vesturvegi
Konur í vesturvegi (enska: Westward the Women) er bandarískur vestri frá 1951 eftir William A. Wellman með Robert Taylor, Denise Darcel og John McIntire í aðalhlutverkum.
Myndin fjallar um bæinn Whitman's Valley í Kaliforníu þar sem búa margir einhleypir karlar, en fáar konur. Framámaður í bænum ákveður því að auglýsa eftir einhleypum konum í Chicago og flytja þær vestur. 140 konur taka tilboðinu og ferðast vestur á bóginn í stórri vagnalest. Á leiðinni þurfa ferðalangarnir að takast á við margar áskoranir, árásir frumbyggja og innbyrðis átök. Mörgum vikum síðar koma þau loks til Whitman's Valley þar sem konurnar hitta eiginmenn sína.
Myndin kostaði 2,2 milljónir dala í framleiðslu og halaði inn tæplega 4 milljónir.[1] Frank Capra er skrifaður fyrir sögunni og ætlaði upphaflega að leikstýra myndinni sjálfur, en Paramount Pictures hafði ekki áhuga. Wellman tókst að selja Metro-Goldwyn-Mayer hugmyndina. Myndin var frumsýnd á gamlársdag 1951. Á Íslandi var hún tekin til sýninga í Gamla bíói í desember 1955.[2]
Árið 1985 gripu karlmenn í spænska þorpinu Plan til sama ráðs eftir að hafa séð myndina í sjónvarpinu. Þá voru yfir 40 einhleypir karlar í þorpinu, en aðeins ein einhleyp kona, þar sem konur bæjarins höfðu flust burt. Þeir auglýstu í blöðum eftir „vagnalest af konum“ (caravana de mujeres sem er titill myndarinnar á spænsku). Það skilaði árangri og í kjölfarið voru haldin 33 brúðkaup.[3] Atvikið varð innblástur fyrir spænsku myndina Blóm annarra heima (Flores de otro mundo) frá 1999.
Lukku-Lákabókin Makaval í Meyjatúni frá 1985 byggist lauslega á myndinni.
Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ The Eddie Mannix Ledger. Los Angeles: Margaret Herrick Library, Center for Motion Picture Study.
- ↑ „Konur í vesturvegi“. Morgunblaðið. 17.12.1955. bls. 13.
- ↑ „Los hijos de la caravana, sin plan“. El Mundo (spænska). 16 janúar 2005.