Fara í innihald

Kista

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Gömul viðarkista með málmgjörðum frá sirka 1847, Þýskalandi.
Gömul viðarkista með málmgjörðum frá Þýskalandi, sirka 1847
Kista frá Nýja Spáni

Kista (eða koffort á eldra máli) er stór hirsla með loki á hjörum, yfirleitt kassalaga úr tré, sem var notuð til þess að geyma ýmist persónulega muni, vörur eða fatnað. Koffort voru ferðatöskur fortíðar, og voru þær oft skreyttar eða málaðar. Þegar ekki var verið að nota þær til flutninga þá töldust þær sem húsgagn þar sem kistur eru oft notaðar fyrir bekki til að sitja á. Smærri kista kallast kistill.

Brúðarkistur

[breyta | breyta frumkóða]

Áður fyrr var ætlast til að konur sem væru að fara gifta sig tæku með sér svokallaðan heimanmund, og í Evrópu tíðkaðist á meðal almennings að stúlkur ættu sér þartilgerða brúðarkistu til að safna þessum heimanmundi í frá barnsaldri. Slíkar kistur voru yfirleitt vel skreittar og personulegar.

Líkkistur eru sértilgerðar kistur útbúnar til að hýsa jarðneskar leifar fólks fyrir jarðarfarir.

Tilvísanir

[breyta | breyta frumkóða]
  Þessi grein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.