Karlalandslið Lýðstjórnarlýðveldisins Kongó í knattspyrnu
Útlit
| Íþróttasamband | Knattspyrnusamband Lýðstjórnarlýðveldisins Kongó | ||
|---|---|---|---|
| Álfusamband | CAF | ||
| Þjálfari | Sébastien Desabre | ||
| Fyrirliði | Chancel Mbemba | ||
| Leikvangur | Levikvangur píslarvottanna | ||
| FIFA sæti Hæst Lægst | 46 (1. apríl 2026) 28 (júlí-ágúst 2017) 133 (október 2011) | ||
| |||
| Fyrsti landsleikur | |||
| 3-2 gegn | |||
| Stærsti sigur | |||
| 10-1 gegn | |||
| Mesta tap | |||
| 0-9 gegn | |||
Karlalandslið Lýðstjórnarlýðveldisins Kongó í knattspyrnu er fulltrúi Lýðstjórnarlýðveldisins Kongó í knattspyrnu og er stjórnað af knattspyrnusambandi landsins. Liðið keppti á HM 1974 sem Zaire og fagnaði sigri í Afríkukeppninni árin 1968 og 1974.
Sagan
[breyta | breyta frumkóða]Knattspyrnusamband Lýðstjórnarlýðveldisins Kongó rekur sögu sína aftur til ársins 1919, þegar landið nefndist enn Belgíska Kongó. Nokkrir óopinberir landsleikir fóru fram á árabilinu 1948 til 1956. Eftir að Kongó öðlaðist sjálfstæði gerðist það bæði aðili að FIFA og Knattspyrnusambandi Afríku og lék sinn fyrsta opinbera landsleik árið 1963, gegn Máritaníu. [1]
Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ „Úrslitagrunnur RSSSF“. 6. júní 2026.