Köfnunarefnishringrás

Köfnunarefnishringrás eða niturhringrás jarðar er næringarefnahringrás þar sem köfnunarefni umbreytist við að ferðast milli andrúmslofts, þurrlendis og sjávar. Breyting köfnunarefnisins ræðst bæði af efnislegum og lífrænum ferlum. Þeirra á meðal eru niturbinding, ammoníaksmyndun, nítratmyndun og nítrateyðing. Megnið af gufuhvolfinu (78%) er gert úr köfnunarefni.[1] Það er þannig helsta uppspretta köfnunarefnis á jörðinni. Það nýtist hins vegar lífrænum ferlum takmarkað sem veldur köfnunarefnisskorti í mörgum tegundum vistkerfa.
Vistfræðingar horfa mikið á köfnunarefnishringrásina þar sem hún getur haft áhrif á lykilferla í vistkerfum; eins og frumframleiðslu og rotnun. Aðgerðir manna, eins og brennsla jarðefnaeldsneytis, notkun köfnunarefnisáburðar, og losun köfnunarefnis í ferskvatn, hafa áhrif á köfnunarefnishringrásina.[2][3][4] Þessi áhrif geta haft neikvæðar afleiðingar fyrir vistkerfi jarðar og heilsu manna.[5][6]
Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ Steven B. Carroll; Steven D. Salt (2004). Ecology for gardeners. Timber Press. bls. 93. ISBN 978-0-88192-611-8.
- ↑ Kuypers, MMM; Marchant, HK; Kartal, B (2011). „The Microbial Nitrogen-Cycling Network“. Nature Reviews Microbiology. 1 (1): 1–14. doi:10.1038/nrmicro.2018.9. hdl:21.11116/0000-0003-B828-1. PMID 29398704. S2CID 3948918.
- ↑ Galloway, J. N.; og fleiri (2004). „Nitrogen cycles: past, present, and future generations“. Biogeochemistry. 70 (2): 153–226. Bibcode:2004Biogc..70..153G. doi:10.1007/s10533-004-0370-0. S2CID 98109580.
- ↑ Reis, Stefan; Bekunda, Mateete; Howard, Clare M; Karanja, Nancy; Winiwarter, Wilfried; Yan, Xiaoyuan; Bleeker, Albert; Sutton, Mark A (1. desember 2016). „Synthesis and review: Tackling the nitrogen management challenge: from global to local scales“. Environmental Research Letters. 11 (12) 120205. Bibcode:2016ERL....11l0205R. doi:10.1088/1748-9326/11/12/120205. hdl:10568/78380. ISSN 1748-9326.
- ↑ Gu, Baojing; Ge, Ying; Ren, Yuan; Xu, Bin; Luo, Weidong; Jiang, Hong; Gu, Binhe; Chang, Jie (17 ágúst 2012). „Atmospheric Reactive Nitrogen in China: Sources, Recent Trends, and Damage Costs“. Environmental Science & Technology. 46 (17): 9420–9427. Bibcode:2012EnST...46.9420G. doi:10.1021/es301446g. ISSN 0013-936X. PMID 22852755.
- ↑ Kim, Haryun; Lee, Kitack; Lim, Dhong-Il; Nam, Seung-Il; Kim, Tae-Wook; Yang, Jin-Yu T.; Ko, Young Ho; Shin, Kyung-Hoon; Lee, Eunil (11 maí 2017). „Widespread Anthropogenic Nitrogen in Northwestern Pacific Ocean Sediment“. Environmental Science & Technology. 51 (11): 6044–52. Bibcode:2017EnST...51.6044K. doi:10.1021/acs.est.6b05316. ISSN 0013-936X. PMID 28462990.