Fara í innihald

Júlía Svyrydenko

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Júlía Svyrydenko
Юлія Свириденко
Svyrydenko árið 2025.
Forsætisráðherra Úkraínu
Í embætti
17. júlí 2025 – 16. júlí 2026
ForsetiVolodymyr Zelenskyj
ForveriDenys Sjmyhal
EftirmaðurSerhíj Koretskyj
Persónulegar upplýsingar
Fædd25. desember 1985 (1985-12-25) (40 ára)
Tsjernígov, úkraínska sovétlýðveldinu, Sovétríkjunum (nú Tsjerníhív, Úkraínu)
ÞjóðerniÚkraínsk
StjórnmálaflokkurÓflokksbundin
HáskóliVerslunar- og hagfræðiskólinn í Kænugarði

Júlía Anatolíjívna Svyrydenko (úkraínska: Юлія Анатоліївна Свириденко; f. 25. desember 1985) er úkraínsk stjórnmálakona og fyrrverandi forsætisráðherra Úkraínu. Hún var fyrsti aðstoðarforsætisráðherra og efnahagsþróunar- og verslunarmálaráðherra Úkraínu frá 4. nóvember 2021 til 17. júlí 2025.[1]

Þann 14. júlí 2025 stakk Volodymyr Zelenskyj forseti upp á því að Svyrydenko yrði falið að mynda ríkisstjórn og að hún tæki við af Denys Sjmyhal sem forsætisráðherra.[2] Úkraínska þingið samþykkti tilnefningu hennar þremur dögum síðar.[3]

Svyrydenko útskrifaðist frá Verslunar- og hagfræðiskólanum í Kænugarði árið 2008 með gráðu í viðskiptastjórnun gegn einokun.[1]

Starfsferill

[breyta | breyta frumkóða]

Svyrydenko hóf starfsferil sinn árið 2008 sem hagfræðingur hjá úkraínsk-andorrska fyrirtækinu JSC "AMP".[4]

Árið 2011 varð hún fastafulltrúi Tsjerníhív í borginni Wuxi. Þetta var eina umboðsskrifstofa úkraínskrar borgar í Kína.[5] Árið 2015 varð hún formaður efnahagsþróunardeildar Tsjerníhívfylkis.[6]

Frá 30. júlí til 28. nóvember 2018 var hún starfandi formaður stjórnsýslu ríkisins í Tsjerníhívfylki. Þann 5. maí 2020 skipaði Volodymyr Zelenskyj forseti Úkraínu Svyrydenko fulltrúa Úkraínu í undirhóp um samfélagsleg og efnahagsleg málefni í þríhliða samskiptahóp til að leysa úr átökunum í Donbas (Úkraína - Öryggis- og samvinnustofnun Evrópu - Rússland). Þann 22. desember 2020 skipaði Zelenskyj Svyrydenko aðstoðarformann skrifstofu forsetaembættisins í stað Júlíu Kovalív.[7]

Þann 4. nóvember 2021 útnefndi úkraínska þingið (Verkhovna Rada) Svyrydenko fyrsta aðstoðarforsætisráðherra og efnahagsþróunar- og verslunarmálaráðherra Úkraínu. 256 þingmenn kusu með útnefningu hennar.[8]

Í ágúst 2022 heimilaði ríkisstjórnin Svyrydenko að leiða starfshóp þvert á stofnanir um framkvæmd efnahagsþvingana.[9] Hún samdi við önnur ríki um herðingu efnahagsþvingana gegn Rússlandi, sér í lagi við fulltrúa frá Bretlandi.[10]

Þann 14. júlí 2025 tilkynnti Zelenskyj uppstokkun í ríkisstjórninni og tilnefndi Svyrydenko nýjan forsætisráðherra.[11] Tilnefning hennar var samþykkt af úkraínska þinginu 17. júlí.[3]

Zelenskyj leysti Svyrydenko úr embætti eftir tæpt ár og vísaði til þess að tryggja þyrfti framkvæmd uppfærðrar pólitískrar stefnu.[12] Serhíj Koretskyj tók við af Svyrydenko þann 16. júlí 2026.[13]

Viðurkenningar

[breyta | breyta frumkóða]

Júlía Svyrydenko birtist á lista í tölublaði tímaritsins Time 13. september 2023, þar sem henni var lýst sem „táknrænni fyrir seiglu úkraínsku þjóðarinnar“ (í tengslum við innrás Rússa í Úkraínu).[14]

Tilvísanir

[breyta | breyta frumkóða]
  1. 1 2 Rada appoints Svyrydenko as First Deputy PM, Economy Minister, Interfax-Ukraine (4. nóvember 2021)
  2. ↑ „Zelenskyy proposes Deputy Prime Minister Svyrydenko to head Ukrainian government“. Ukrainska Pravda (enska). Sótt 14 júlí 2025.
  3. 1 2 Denysiaka, Olha (17 júlí 2025). „Рада призначила Свириденко прем'єр-міністеркою [Rada appointed Svyrydenko as Prime Minister]“. hromadske (úkraínska). Sótt 17 júlí 2025.
  4. ↑ „Свириденко Юлія Анатоліївна — АГРОПОЛІТ“. Afrit af upprunalegu geymt þann 14 ágúst 2020. Sótt 4 júlí 2025.
  5. ↑ „Свириденко Юлія Анатоліївна — АГРОПОЛІТ“. Afrit af upprunalegu geymt þann 14 ágúst 2020. Sótt 4 júlí 2025.
  6. ↑ „Свириденко Юлія Анатоліївна — АГРОПОЛІТ“. Afrit af upprunalegu geymt þann 14 ágúst 2020. Sótt 4 júlí 2025.
  7. ↑ Zelenskyy appoints Svyrydenko Deputy Head of Presidential Office to Replace Kovaliv Geymt 14 janúar 2021 í Wayback Machine, Ukrainian News Agency (22. desember 2020)
  8. ↑ Rada appoints Svyrydenko as first deputy prime minister, economy minister, Kyiv Post (4 November 2021)
  9. ↑ „Кабінет Міністрів України - Уряд уповноважив Міністра економіки України Юлію Свириденко координувати роботу з санкційної політики“. www.kmu.gov.ua (úkraínska). Sótt 2 janúar 2023.
  10. ↑ „Україна та Велика Британія посилять координацію в питаннях запровадження санкцій“.
  11. ↑ „BREAKING: Zelensky announces next prime minister, launches government reshuffle“. The Kyiv Independent. 14 júlí 2025. Sótt 14 júlí 2025.
  12. ↑ Silja Rún Sigurbjörnsdóttir (14. júlí 2026). „For­sætis­ráð­herra Úkraínu lætur af em­bætti“. Vísir. Sótt 16. júlí 2026.
  13. ↑ „Nýr forsætisráðherra skipaður í Úkraínu“. mbl.is. 14. júlí 2026. Sótt 16. júlí 2026.
  14. ↑ „TIME100 Next“. Time. 16. september 2023. Afrit af uppruna á 13. september 2023. Sótt 16. september 2023.


Fyrirrennari:
Denys Sjmyhal
Forsætisráðherra Úkraínu
(17. júlí 2025 – 16. júlí 2026)
Eftirmaður:
Serhíj Koretskyj