Jötungíma
Útlit
Jötungíma | ||||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Jötungíma (Calvatia gigantea)
| ||||||||||||||
Vísindaleg flokkun | ||||||||||||||
| ||||||||||||||
Tvínefni | ||||||||||||||
Calvatia gigantea |
Jötungíma (fræðiheiti: Calvatia gigantea) er sveppur af físisveppaætt sem getur myndað risavaxin aldin. Á Íslandi hefur jötungíma fundist í Hrunamannahreppi, á Þríhyrningi í Hörgárdal og á Leirhafnartorfunni á Melrakkasléttu. Talið er að sveppur sem fannst í Bolungarvík í júlí 2006 sé jötungíma. Á Skáni í Svíþjóð fannst árið 1909 jötungíma sem var 60 cm í þvermál og vóg 14 kíló. Aldinið stækkar feikihratt og getur innihaldið 10 milljarða gróa.
Flokkun Jökungímu hefur verið endurskoðuð en hún var áður flokkuð sem Langermannia gigantea.
Heimildir
[breyta | breyta frumkóða]- Jökulgíma (Náttúrufræðistofnun Íslands)[óvirkur tengill]
- „Risasveppur fannst í Bolungarvík“. Sótt 12. júlí 2006.
- „Jätteröksvamp, Langermannia gigantea: nytt svenskt rekord“. Sótt 20. ágúst 2020.
- „Svampbok Naturhistoriska riksmuseet“. Sótt 12. júlí 2006.
Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist Jötungíma.
Wikilífverur eru með efni sem tengist Calvatia gigantea.
Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist Langermannia gigantea.