Jón Laxdal (leikari)
Útlit
(Endurbeint frá Jón Laxdal)
Jón Laxdal | |
---|---|
Fæddur | 7. júní 1933 Ísafjörður, Ísland |
Dáinn | 15. maí 2005 (71 árs) Kaiserstuhl, Sviss |
Þjóðerni | Íslenskur |
Störf | Leikari og leikstjóri |
Börn | 3 |
Foreldrar | Halldór Friðgeir Sigurðsson Svanfríður Albertsdóttir |
Jón Laxdal Halldórsson (7. júní 1933 - 15. maí 2005) var leikari og leikstjóri.
Jón fæddist á Ísafirði. Hann var tólfta barn Halldórs Friðgeirs Sigurðssonar frá Arnardal og Svanfríðar Albertsdóttur frá Ísafirði. Hann lærði við leiklistarskóla Þjóðleikshússins og Max-Reinhardt-Seminar í Vín.
Jón Laxdal lék m.a. Garðar Hólm í Brekkukotsannál (1972) og bóndann Steinar í Paradísarheimt, sem báðar voru gerðar eftir skáldsögum Halldórs Laxness. Jón rak eigið leikhús í Kaiserstuhl í Sviss sín síðustu ár.
Árið 1980 var hann sæmdur riddarakrossi hinnar íslensku Fálkaorðu fyrir leiklistarstörf af Vigdísi Finnbogadóttur.[1]
Árið 2001 komu út endurminningar hans, Lífið lék við mig, sem skráðar voru af Haraldi Jóhannssyni.[2]
Heimildir
[breyta | breyta frumkóða]Tenglar
[breyta | breyta frumkóða]- Jón Laxdal í návígi; grein í Lesbók Morgunblaðsins 1983
- Jón Laxdal Halldórsson; minningargrein í Morgunblaðinu 2005
- Vinnuaginn er mjög strangur; viðtal í Vikunni 1971
- "Ég vona að það fari ekki með mig eins og konsertinn hans Garðars Hólm í Báruhúsinu"; viðtal í Tímanum 1971
- Jón Laxdal leikur hér eftir 16 ára útivist; grein í Tímanum 1972
- Ferill á IMDB.com
Þetta æviágrip sem tengist leikurum og Íslandi er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.