Jón Ólafsson (heimspekingur)
Útlit
Íslensk heimspeki Heimspeki 20. aldar, Heimspeki 21. aldar | |
---|---|
Nafn: | Jón Ólafsson |
Fædd/ur: | 1964 |
Skóli/hefð: | Rökgreiningarheimspeki |
Helstu ritverk: | Kæru félagar: íslenskir sósíalistar og Sovétríkin 1920-1960 |
Áhrifavaldar: | John Dewey |
Jón Ólafsson (fæddur 1964) er íslenskur heimspekingur.
Menntun
[breyta | breyta frumkóða]Jón lauk B.A.-prófi frá Háskóla Íslands árið 1989. Að námi sínu loknu við Háskóla Íslands hlaut Jón styrk til náms við Moskvuháskóla og dvaldi eitt ár í Moskvu. Eftir tveggja ára starf á fréttastofum Ríkisútvarpsins, hélt Jón til Bandaríkjanna þar sem hann nam heimspeki við Columbia University. Hann hlaut doktorsgráðu frá Columbia árið 2000. Doktorsritgerð Jóns heitir Conflict and Method: An Essay on Dewey og fjallar um heimspeki bandaríska heimspekingsins Johns Dewey. Eftir að námi lauk var hann forstöðumaður Hugvísindastofnunar Háskóla Íslands um þriggja ára skeið, en gegnir nú stöðu prófessors og forseta félagsvísindadeildar við Háskólann á Bifröst.
Helstu ritverk
[breyta | breyta frumkóða]- Appelsínur frá Abkasíu. Vera Hertzsch, Halldór Laxness og hreinsanirnar miklu (Reykjavík: Forlagið, 2012).
- Kæru félagar: íslenskir sósíalistar og Sovétríkin 1920-1960 (Reykjavík: Mál og menning, 1999).