Innu

Innu er þjóðflokkur frumbyggja sem hafa búið aðallega í Labrador og Quebec í austur Kanada. [1]. Heitið Innu sem er notað bæði í eintölu og fleirtölu þýðir fólk eða manneskja. Einnig er til fleirtöluformið Innut. Á ensku og frönsku var þjóðflokkurinn áður kallaður Montagnais ("fjallafólk" á frönsku). Innu eru náskyldir þeim Cree-þjóðflokkum sem búa á vesturhluta Labrador-skagans, en óskildir Inúítum.
Menningarbrot
[breyta | breyta frumkóða]
Þeir nefna heimasvæði þjóðflokksins Nitassinan (”okkar land”) og einnig Innu-assi ("Innu land"). Þetta er svæði á stærð við Bretland á austurhluta Labrador-skaga, svæðið nær frá norðurströnd Saint Lawrence fljóts og norður skagann. Sögulega var það Dorset-fólk og síðan Inúítar sem bjuggu á strandlengjunni norðan við Goose Bay og norður skagan og Innu inn í landinu.
Fornleifafundir sýna að að forfeður þjóðflokksins hafa búið á þessu svæði sem safnarar og veiðimenn í um átta þúsund ár.[2] Þeir fluttu eftir árstíðabundnum ferðum veiðidýra. Á austur- og norðurhluta skagans veiddu þeir einkum hreindýr, en á vesturhluta svæðisins elgi, dádýr, bjóra, birni og ýmsa vatnafiska. Við ströndina veiddu þeir seli, lax og aðra fiska, þeir söfnuðu einnig rótum og plöntum, tíndu ber og unnu hlynsafa. Þeir voru hluti af þróuðu viðskiptaneti við aðrar frumbyggjaþjóðir eins og Írókesa.[3]

Innu-fólkið ferðist á svipaðan hátt og aðrar Algonkínskar þjóðir í Norður-Ameríku, notuðu kanóa

til vatnaferða á sumrin og snjóþrúgur og sleða á veturna. Þeir bjuggu í tjöldum gerðum úr dýrahúðum og berki af birkitrjám. Að vetralagi bjuggu oftast nokkri fjölskylduhópar saman en stærstan hluta ársins bjuggu þeir í litlum fjölskylduhópum. All fjölmennar samkomur voru haldnar á sumrin, sem voru miklivægur þáttur í félagslífi og kynnum fólks.[4]
Allir hlutar veiðidýranna voru nýttir, bæði til matar en ekki síst voru skinnin notuð í tjöld og fatnað, oft skreytt með myndum og fjöðrum.
Trú á dýraanda var veigamikil í veiðunum og mjög mikilvægt til að sýna veiðidýrunum virðingu meðal annars með því að henga fórnir úr beinum og höfuðkúpum í tré eða leggja á upphækkaða palla. Við hátíðir voru trommur slegnar og sungið fyrir anda dýranna. Sprungur og rifur í brunnum herðablöðum veiðidýra voru lesnar sem spá fyrir framtíðina.
Tungumál
[breyta | breyta frumkóða]Tungumál Innu-fólksins er talað um allt Nitassinan svæðið, en talsverður mállýskumunur er eftir landsvæðum. Það er algonkískt mál, náskilt Cree og er algjörlega óskilt tungumálum Inúíta.[5]
Sögustiklur
[breyta | breyta frumkóða]Norræn samskipti
[breyta | breyta frumkóða]Allt fram undir ár 1300 bjuggu Innu-menn mest alla strönd Austur-Labrador. Um 1250 fóru þeir að hörfa undan Inúítum sem komu að norðan, þangað til að komið var suður að Goose Bay um 1450. Í Eiríks sögu rauða og Grænlendinga sögu er sagt frá samskiptum norrænna manna og frumbyggja (sem nefndir voru Skrælingjar í sögunum) í norðaustur Norður-Ameríku. Engin vissa eru um úr hvaða þjóðflokkum þessir frumbyggjar komu en fimm eru taldir mögulegir. Fyrir utan Innu eru það Beótúk, Mikmak. Wolastoqiyik[6] og þar að auki Inúítar. Það hefur verið talið að Markland sem nefnt er í sögunum samsvari Labrador. Það er því ekki ólíklegt að Norrænir Grænlendingar hafi hitt Innu-fólk, ekki síst á timburferðum til þess sem þá var nefnt Markland. Meðal annars hefur fundist örvaroddur við uppgröft í Sandnesi í Vestribyggð á Grænlandi sem gæti verið uppruninn hjá Innu-mönnum. Þessi örvaroddur gæti þó einnig verið frá Beótúk-fólkinu.[7]
Nýlendusaga
[breyta | breyta frumkóða]Það er mjög líklegt að basneskir hvalveiðimenn[8] hafi verið fyrstu Evrópubúarnir fyrir utan Norrænu Grænlendingana sem komust í snertingu við Innu-þjóðina. Kort er til sem sýnir að Breskir fiskimenn sóttu þegar fiskistöðvar í „Nýfundnu löndunum“ árið 1506. [9] Ítalinn Giovani Caboto (sem er þekktari sem John Cabot, þar sem hann sigldi fyrir konungin í Englandi) uppgötvaði fiskimiðin við Labrador og Nýfundnaland á ferð sinni árið 1497. Á þessum miðum var óhemju þorskgengd á þessum tíma. Þessi fundur hleypti af stað kapphlaupi Evrópskra fiskimanna um að komast að bestu fiskimiðunum á sumarvertíðum.
Innu-þjóðin var meðal fyrstu frumbyggja Norður-Ameríku sem hittu evrópska menn. Engu að síður var Innu-fólkið minna þekkt en aðrar frumbyggjaþjóðir sem bjuggu lengra í vestur, þrátt fyrir að samskipti hófust við þá miklu seinna. Að hluta til er þetta vegna þess að Innu-fólkið dvaldist mikið af árinu langt inn í landi þar sem nú er Quebec og Labrador, og lifðu þar til nýlega sem veiðimenn og safnarar og heimsóttu aðeins verslunarstöðvar við ströndina einstaka sinnum. Innu-þjóðin var einnig ein af síðustu frumbyggjaþjóðum Kanada sem urðu fast búsett í þorpum, það var ekki fyrr en á sjöunda áratugi 20 aldar sem það gerðist í stærri stíl.
Fram að byrjun 20. aldar bjuggu Innu-menn inn í landi yfir vetrarmánuðina en fluttu að ströndinni á sumrin til að veiða fisk, seli og sjófugla. Á 16. öld og snemma á 17. öld sóttu Innu-menn baskneska sjómenn heim á stöðvum á suðurströnd Labrador.[10] Þessar sumarferðir til verslunarstaðana urðu tíðari eftir að franskir kaupmenn og kaþólskir trúboðar[11] á 17. öld, og Bretar og trúboðar Bræðrasafnaðarins (einnig nefndir herrnhútar) á 18. öld, lokkuðu Innu-menn til að koma til verslunar- og bækistöðva sinna og helst setjast þar að.

Í fyrstu breyttu samskipti við kaupmenn og trúboða ekki daglegu lífi Innu-fólksins verulega. Í tvær aldir byggðust samskipti Innu-fólks og Evrópumanna á loðskinnaverslun. Verslunin við Saint Lawrence-flóa var skipulögð sem einokun og var leigð til kaupmanna með einkarétti, í fyrstu af Frakklandi og síðar Bretlandi. Á 19. öld tókst skinnakaupmönnum að fá marga Innu-veiðimenn á norðursvæðum Labrador til að hætta hreindýraveiðum og í stað þess fara að stunda loðdýraveiðar með gildrum. Með þessu varð fólkið háð kaupmönnunum um mat og aðrar nauðsynjar. Um miðja 19. öldina hafði loðdýraveiðin minkað mikil vegna ofveiða og þetta leiddi til matarskorts þegar ekki var hægt að borga kaupmönnum með skinnvöru og birgðir þrutu. Þetta hörmungarástand var til þess að stór hluti Innu-þjóðarinnar þurfti aðstoð frá trúboðum og stjórnvöldum til að lifa af.
Koma Evrópumanna olli miklu mannfalli hjá Innu-fólkinu vegna bólusóttar, spænsku veikinnar, berkla, sárasóttar, skarlatssóttar, kíghósta, mislinga og annarra sjúkdóma eins og hjá öðrum frumbyggjum Ameríku.[12]
Notkun skotvopna dró úr þörf á samvinnu hreindýraveiðimanna, en þeir höfðu áður hlaðið garða og reist upp girðingar saman til að safna hreindýrunum og reka þau til sláturs. Kaþólska trúboðið hafði einnig áhrif á búsetu, til að geta reglulega gengið til altaris til að meðtaka sakramentið og að skrifta var Innu-fólkið hvatt til að setjast að við trúboðsstðvarnar. Það var þó ekki fyrr en fór að líða á 20. öldina sem veiðmanna og safnaralíf Innu fór að taka stórfelldum breytingum.

Á árunum fyrir fyrri heimsstyrjöldina hækkaði verð mjög á loðskinnum og fólk af evrópskum ættum sem hafði áður búið við ströndina fór að flytja til bestu veiðisvæðanna setja út gildrur. Þeir fóru einnig að eigna sér land og loka aðgengi annara, þetta stangaðist algjörlega á við hefðbundna sameiginlega landnotkun Innu-þjóðflokksins. Fljótlega höfðu innfluttningarnir yfirtekið öll bestu veiðisvæði Innu-manna og meðal annars útilokað þá frá flestum laxaám. Eftir 1900 hófst einnig mikið skógarhögg á hluta hins hefðbundna svæðis þeirra.[13] Samantekið olli þetta að stofnar helstu veiðidýra sem Innu veiddu til matar, sérstaklega hreindýra, for mjög minkandi. Um miðja öldina hófst einnig mikill námugröftur á vesturhluta Labrador og hafði mikil áhrif á veiðimöguleika. Innu-menn fóru þá í vaxandi mæli að hrökklast af sulti til sjávarþorpanna til að leita aðstoðar hjá trúboðum, kaupmönnum og fulltrúum stjórnarvalda.

Um miðja 20. öld voru margir Innu orðnir háðir aðstoð hins opinbera og sestir að í fátækrahverfum í útjaðri þorpana. Á sjöunda áratugnum voru svo nefndir frumbyggjskólar opnaðir, margir þeirra sem heimavistarskólar. Það þýddi að börnin voru aðskilin í frá foreldrum sínum og þar með Innu-tungumáli og menningu. Samtímis var mikil áhersla stjórnvalda í Kanada að á að þjóðflokkar safnara og veiðimanna hættu að flytja milli staða eftir árstímum og veiði og þessi í stað fá fasta búsetu í þeirri trú að líf þeirra myndi batna með þessu. Samtíma Innu-menn hafa að mestu leyti fasta búsetu í 12 þorpum, dreifðum um stórt landsvæði og mörg þeirra eru mjög afskekkt. Afleiðing allra þessara breytinga var sú að Innu-menn urðu útilokaðir frá veiðum sem var grundvöllur menningar þeirra. Það var litið niðu á þá þar sem þeir bjuggu í fátækrahverfum. Sjálfsfyrirlitning leiddi til drykkjuskapar, ofbeldis og vanrækslu á börnum og hárrar tíðni sjálfsvíga.[14] Þróun sem hefur endurtekið sig víða meðal frumbyggja.
Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ Tanner, Adrian (September 9, 2025) [September 1, 2010]. "Innu (Montagnais-Naskapi)". The Canadian Encyclopedia. Historica Canada.
- ↑ [ https://www.gov.nl.ca/tcar/archaeology-sites/ Archaeology Sites in Newfoundland and Labrador] Government of Newfoundland and Labrador
- ↑ Ann M. Carlos (2022). The Country They Built: Dynamic and Complex Indigenous Economies in North America before 1492. The Journal of Economic History , Volume 83 , Issue 2 , June 2023 , Bls. 319 - 358 DOI: https://doi.org/10.1017/S0022050723000153
- ↑ Mailhot, José. The People of Sheshatshit: In the Land of the Innu. St. John's: ISER, 1997
- ↑ Brittain, Julie. “Aboriginal Language Maintenance and Revitalization in Newfoundland and Labrador.” Canadian Research Chair talk given 25 April 2003. St. John's: Memorial University, 2003.
- ↑ Ulrich Johann (2022). [http://DOI:10[óvirkur tengill].13140/RG.2.2.15556.91527 Fundit Vínland góða. The Norse Vinland expeditions revisited DOI:10.13140/RG.2.2.15556.91527
- ↑ The Significance of Remote Resource Regions for Norse Greenland. úr: Scripta Islandica, ISSN 0582-3234, Vol. 56, bls. 13-54
- ↑ Vincent Delmas (2019). Indigenous Traces on Basque Sites: Direct Contact or Later Reoccupation? Newfoundland and Labrador Studies 33(1) DOI:10.7202/1055864ar
- ↑ Mcintosh, Gregory C. (2022-05-04). "The Caverio Planisphere (c. 1506) Was Not Copied from the Cantino Planisphere (1502)". Terrae Incognitae. 54 (2): 110–161. doi:10.1080/00822884.2022.2099098. ISSN 0082-2884. S2CID 251260330.
- ↑ Brad Loewen (2018). Basques and Indigenous Peoples in Newfoundland and Labrador in the 17th Century. Newfoundland and Labrador Studies Issue: 1 Volume: 33. 2018
- ↑ Jacques Monet (2008). The Innu and the Jesuit Literary Review of Canada
- ↑ Andrew J Ghio (2018). Particle exposure and the historical loss of Native American lives to infections. Published in final edited form as: Am J Respir Crit Care Med. 2017 Jun 15;195(12):1673. doi: 10.1164/rccm.201609-1810LE
- ↑ Burke, Rhonda Carol. “Land, Resources and Discourses of Development in Central Labrador.” Memorial University, 2003.
- ↑ Janelle Kelly (2024). Modern programs to combat addictions are taking Labrador Innu back to their roots, inquiry hears. CBC News · Posted: Jan 24, 2024