Hjálp:Upplýsingaskjölun
Upplýsingaskjölun er mikilvæg á Wikipedia, þar sem það gefur mikilvægar upplýsingar um tilgang og notkun sniða sem auðveldar öðrum notendum að notfæra sér sniðin á réttan hátt. Allar upplýsingar sem birtast með skjölunarsniðinu eru innleiddar úr meðfylgjandi /doc undirsíðu til þess að aðskilja það frá sjálfum sniðkóðanum.
Þetta kemur í veg fyrir slys þar sem sniðkóðinn brotnar auk þess að gefa notendum auðvelda leið til að uppfæra upplýsingarnar eða skapa sandkassa og prufudæmi.
Skjölun á ekki eingöngu við um snið, heldur er það einnig notað á t.d. skriftum (modules) og síðum sem innihalda efni sem á að innleiða á öðrum síðum.
Hvernig bætir maður við skjölunarsniði?
[breyta | breyta frumkóða]Almennt
[breyta | breyta frumkóða]Það eina sem þarf er að lauma inn {{Documentation}} inn í <noinclude>...</noinclude> merkingar neðst í sniðið. Allir flokkar sem sniðið á að fara í verður síðan bætt við á /doc undirsíðunni eftirá.
<!---
Sniðkóðinn / Efni til innleiðingar
-----><noinclude>{{Documentation}}</noinclude>
Fyrir skriftur (module)
[breyta | breyta frumkóða]Skriftur eru öðruvísi en hefðbundnar síður á Wikipedia; þær eru sjálfkrafa með tengda /doc undirsíðu. Hér þarf að nota aðra aðferð til að fá skjölunarkassann utan um upplýsingarnar.
<includeonly>{{Doucmentation/start}}</includeonly>{{Documentation subpage}}
<!---
Upplýsingarnar
--->
<includeonly>{{Documentation/end}}</includeonly>
Notkun á <includeonly> lætur það einungis birtast þegar skriftan sjálf er skoðuð, en ekki á skjölunarundirsíðunni.
Hvað fer í skjölunar undirsíður?
[breyta | breyta frumkóða]Upplýsingar /doc
[breyta | breyta frumkóða]Það er ekkert að því að vísa bara í sniðupplýsingar á upprunalegu ensku Wikipedia ef sniðið kemur þaðan, sérstaklega ef það er flókið snið; bara muna að gera tungumálatengingu á milli sniða í þeim tilfellum.
- {{Documentation subpage}} efst, það flokkar undirsíðuna og vísa í síðuna sem upplýsingarnar tengjast.
- Lýsing á tilgangi (t.d. hvar á að nota sniðið)
- Notkunarleiðbeiningar
- Upplýsingar um breytur (ef á við, einnig hægt að nota eingöngu snimátsgögn til að birta upplýsingar um breytur)
- Sýnidæmi
- Sniðmátsgögn (e. TemplateData)
- Tengt efni (t.d. sambærileg snið eða tenglar í hjálparsíður sem sniðið tengist)
- Flokkar (setjið þá inn í
<includeonly>...</includeonly>merkingar)
Sandkassi
[breyta | breyta frumkóða]Ef það á að breyta sniði sem er nú þegar í notkun á öðrum síðum, þá skal nota sandkassann til að gera breytingar á sniðkóða eða til að sýna tillögur að breytingum sem hægt er að spjalla um áður en núverandi sniðið er uppfært. Þá er hægt að kalla á sandkassa útgáfu sniðs með {{Nafnsniðs/sandkassi}} til að prófa það. Ráðlagt er að setja upp prufudæma undirsíðuna ef verið er að fikta í flóknum sniðum.
Prufudæmi
[breyta | breyta frumkóða]Tilgangur prufudæma er helst að bera saman núverandi snið við sandkassa útgáfu þess til að vera viss um að breytingar séu ekki að fara brjóta núverandi notkun sniðs. {{Prufudæmi}} er snið sem setur upp slík dæmi sem hægt er að nota á pufudæma síðunni.