Fara í innihald

Höfuðpaurinn

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Höfuðpaurinn
HöfundurWilliam Golding
Upprunalegur titillLord of the Flies
ÞýðendurÓlafur Haukur Árnason og Snæbjörn Jóhannsson
Hönnuður kápuAnthony Gross[1]
LandFáni Bretlands Bretland
TungumálEnska
StefnurTáknsaga
ÚtgefandiFaber and Faber
Útgáfudagur
17. september 1954

Höfuðpaurinn (enska: Lord of the Flies) er skáldsaga frá árinu 1954 eftir breska rithöfundinn William Golding. Sagan snýst um hóp ungra breskra drengja sem verða strandaglópar á eyðieyju og hvernig tilraunir þeirra til að halda uppi lögum og reglu snúast smám saman upp í villimennsku. Í bókinni er meðal annars fjallað um siðferði, forystu og togstreituna á milli siðmenningar og glundroða.

Höfuðpaurinn fékk almennt góðar viðtökur og hefur gjarnan verið skyldulesefni í skólum.

Höfuðpaurinn kom út árið 1954 og var fyrsta skáldsaga Golding. Golding fékk hugmyndina að sögunni úr bókinni The Coral Island, ævintýrasögu fyrir börn með áherslu á kristni og meint siðmenntunaráhrif breskrar nýlendustefnu. Golding fannst sú bók óraunsæ og spurði eiginkonu sína hvort það gæti verið góð hugmynd að „skrifa bók um börn á eyju, börn sem haga sér eins og börn myndu í raun haga sér?“[2]

Golding, sem var heimspekikennari áður en hann varð liðsforingi í breska sjóhernum, þekkti stríð af eigin raun og hafði stýrt lendingarfari í innrásinni í Normandí árið 1944. Þegar Golding sneri heim eftir stríðslok voru kalda stríðið og hættan á kjarnorkustríði á allra vörum, sem vakti Golding til umhugsunar um eðli mannsins og varð honum innblástur að Höfuðpaurnum.[3]

Skáldsögunni var hafnað af mörgum útgáfufélögum áður en Faber & Faber féllst loks á að birta hana. Í fyrstu höfnuninni var bókin sögð „fáránleg [...] og leiðinleg“.[4] Drögin að bókinni báru titilinn Strangers from Within (ísl. Ókunnugir að innan), sem var talinn „of óhlutstæður og of berorður“.[5] Golding valdi að lokum titilinn Lord of the Flies (ísl. Höfðingi flugnanna).[6][7] Titillinn á frummálinu er beinþýðing á nafni Belsebúbs, djöfuls í biblíunni sem er sagður guð drambs og hernaðar.[8][9][10]

Ritstjórinn Charles Monteith vann með Golding að nokkrum meiriháttar breytingum, meðal annars þeirri að eyða opnunarkafla með lýsingu af forðun aðalpersónanna frá kjarnorkustríði.[4][5] Persóna Símons varð einnig fyrir miklum breytingum, þar sem fjarlægður var þáttur þar sem hann átti í samskiptum við dularfulla persónu sem gefið var til kynna að væri guð.[11] Golding sætti sig að lokum við breytingarnar og skrifaði: „Ég hef glatað allri hlutlægni sem ég hafði á þessa skáldsögu og get varla horft á hana lengur“.[12] Handritin með breytingunum eru til sýnis á bókasafni Exeter-háskóla.[13]

Söguþráður

[breyta | breyta frumkóða]

Í miðjum brottflutningi barna úr stríði brotlendir bresk flugvél á eyðiey. Þeir einu sem lifa af eru ungir drengir. Ljóshærður drengur að nafni Ralf hittir þybbinn strák sem er kallaður Vambi (e. Piggy). Þeir finna kuðung sem Ralf notar sem gjallarhorn til að kalla saman þá sem lifðu af. Ralf tekur sér strax forystuhlutverk í hópnum og er kjörinn foringi strákanna. Hann setur strákunum þrjú markmið: Að skemmta sér, lifa af og halda báli brennandi sem á að senda reykmerki til skipa sem sigla hjá. Ásamt rauðhærðum dreng að nafni Jack og þöglum dreng að nafni Símon notar Ralf gleraugu Vamba til að kveikja eld.

Allt skipulag meðal drengjanna rennur fljótt út í sandinn þar sem drengjunum fer að leiðast og þeir hunsa tilraunir Ralfs til að bæta lífið á eyjunni. Þeir verða óttaslegnir út af ímynduðu skrímsli sem þeir halda að sé einhvers staðar í felum. Ralf tekst ekki að sannfæra hina um að skrímslið sé ekki til en Jack verður vinsæll með því að lýsa yfir að hann muni veiða og drepa skrímslið. Eitt skiptið fer Jack með strákana að veiða villisvín, þar á meðal strákana sem áttu að gæta eldsins. Eldurinn slokknar og skip siglir því fram hjá eynni án þess að taka eftir drengjunum. Ralf ávítar Jack og íhugar að hætta sem foringi hópsins en Vambi telur honum hughvarf.

Eina nóttina er flugorrusta háð nærri eynni og lík herflugmanns svífur niður í fallhlíf. Tvíburabræðurnir Sammi og Eiríkur koma auga á líkið og halda að það sé skrímslið. Þegar Ralf og Jack kanna málið ásamt öðrum dreng, Roger, flýja þeir í ofboði og sannfærast um að skrímslið sé raunverulegt. Jack reynir að fá hina drengina á sitt band gegn Ralf og strunsar síðan burt til að stofna sinn eigin ættflokk. Flestir hinir drengirnir ganga hver af öðrum til liðs við hann. Jack og fylgismenn hans koma fyrir fórn til skrímslisins í skóginum: Svínshöfði á tálguðum staur sem flugur sveima kringum. Símon, sem fer gjarnan einn síns liðs inn í skóginn, dreymir að höfuðið, sem hann kallar „höfðingja flugnanna“, tali til sín. Höfuðið segir Símoni að það sé ekkert skrímsli á eyjunni en gefur í skyn að skrímslið sé í raun innra með drengjunum sjálfum og spáir því að hinir strákarnir muni snúast gegn Símoni. Sama kvöld heimsækja Ralf og Vambi ættflokk Jacks, þar sem strákarnir eru farnir að mála á sér andlitin og dansa frumstæða helgidansa. Þegar Símon áttar sig á því að skrímslið er bara dauður flugmaður flýtir hann sér til að segja ættflokki Jacks en vitstola strákarnir, þar á meðal Ralf og Vambi, taka hann í misgripum fyrir skrímslið og berja hann til dauða. Ralf og Vambi telja sér trú um að þeir beri ekki ábyrgð á dauða Símons og láta öldurnar skola líki hans út á haf.

Jack og ættflokkur hans stela gleraugum Vamba um miðja nótt. Ralf fer ásamt Vamba, Samma og Eiríki til búða Jacks til að heimta þau aftur. Roger veltir steinhnullungi sem drepur Vamba og mölbrýtur kuðunginn. Ralf kemst undan en Sammi og Eiríkur eru teknir til fanga. Um kvöldið nær Ralf að ræða við Samma og Eirík í laumi. Þeir vara hann við því að Jack ætli að veiða hann og Ralf segir þeim hvar hann hyggst fela sig.

Um morguninn kveikir ættflokkur Jacks í skóginum. Ralf rétt kemst undan strákunum og eldinum en rekst á flóttanum á fullorðinn mann í einkennisbúningi – breskan liðsforingja úr sjóhernum sem er kominn til að kanna upptök reyksins. Ralf, Jack og hinir strákarnir bresta í grát yfir „glötuðu sakleysi“. Liðsforinginn segist vonsvikinn yfir því að sjá drengina hegða sér á svo villimannslegan máta en snýr sér svo við og horfir á beitiskipið sem bíður undan ströndum eyjarinnar.

Tilvísanir

[breyta | breyta frumkóða]
  1. ↑ „Bound books – a set on Flickr“. 22 nóvember 2007. Afrit af uppruna á 25 október 2014. Sótt 10. september 2012.
  2. ↑ „Lord of the Flies and The Coral Island“. Web.archive.org. Afritað af uppruna á 23 janúar 2021. Sótt 21 maí 2026.
  3. ↑ Dash, Jill (12. desember 2019). „Why should you read "Lord of the Flies" by William Golding?“. YouTube.
  4. 1 2 Monteith, Charles. "Strangers from Within." William Golding: The Man and His Books, edited by John Carey, Farrar Straus & Giroux, 1987.
  5. 1 2 „The 100 best novels: No 74 – Lord of the Flies by William Golding (1954)“. The Guardian. Afrit af uppruna á 12 júní 2020. Sótt 25 júní 2020.
  6. ↑ Symons, Julian (26. september 1986). „Golding's way“. The Guardian. ISSN 0261-3077. Afrit af uppruna á 6 október 2019. Sótt 28 apríl 2019.
  7. ↑ Faber, Toby (28 apríl 2019). „Lord of the Flies? 'Rubbish'. Animal Farm? Too risky – Faber's secrets revealed“. The Observer. ISSN 0029-7712. Afrit af uppruna á 28 apríl 2019. Sótt 28 apríl 2019.
  8. ↑ „Who is Beelzebub in the Bible? Name Meaning and Importance“. Christianity.com (enska). Sótt 10 október 2025.
  9. ↑ „Definition of "Beelzebub" | Collins English Dictionary“. www.collinsdictionary.com (enska). Afrit af uppruna á 11. mars 2016. Sótt 10 október 2025.
  10. ↑ „Strong's Greek: 954. Βεελζεβούλ (Beelzeboul) -- Beelzebul, Beelzebub“. biblehub.com. Sótt 10 október 2025.
  11. ↑ Kendall, Tim. Email, University of Exeter, received 5th Feb 2021.
  12. ↑ Williams, Phoebe (6 júní 2019). „New BBC programme sheds light on the story behind the publication of Lord of the Flies“. Faber & Faber Official Site. Afrit af uppruna á 1 maí 2021. Sótt 14 febrúar 2021.
  13. ↑ „EUL MS 429 – William Golding, Literary Archive“. Archives Catalogue. University of Exeter. Afrit af upprunalegu geymt þann 5 apríl 2023. Sótt 6 október 2021. „The collection represents the literary papers of William Golding and consists of notebooks, manuscript and typescript drafts of Golding's novels up to 1989.“