Grænlandsknörrinn
Útlit

Grænlandsknörrinn var farmskip sem sigldi milli Noregs og Grænlands á tímum norrænna manna þar. Þegar norrænu Grænlendingarnir gengu Noregskonungi á hönd 1261 var samið um að senda tvo knerri árlega með vörur milli landanna. Ekki var þetta siglingaloforð að fullu efnt, en eitt skip sem nefnt var Grænlandsknörrinn sigldi flest ár þar til það fórst við Noreg 1367 eða 1369.[1] Ekki er vitað hvort það var sama skipið sem notað var öll þessi ár. Eftir að Grænlandsknörrinn fórst virðist ekkert skip verið í reglulegum siglingum milli landanna.
Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ Ingólfur Davíðsson (20. mars 1983). „Á fornum Íslendingaslóðum við Grænland“. Tíminn. bls. 18-20.