Gianni Infantino
| Gianni Infantino | |
|---|---|
Infantino árið 2026. | |
| Forseti Alþjóðaknattspyrnusambandsins | |
Núverandi | |
| Tók við embætti 26. febrúar 2016 | |
| Varaforseti | Ángel María Villar David Chung Salman bin Ibrahim Al Khalifa |
| Forveri | Sepp Blatter |
| Persónulegar upplýsingar | |
| Fæddur | 23. mars 1970 Brig, Valais, Sviss |
| Þjóðerni | Svissneskur |
| Maki | Leena Al Ashqar |
| Börn | 4 |
| Háskóli | Háskólinn í Fribourg |
| Undirskrift | |
Giovanni Vincenzo Infantino (f. 23. mars 1970) er svissneskur knattspyrnustjóri sem hefur verið forseti Alþjóðaknattspyrnusambandsins (FIFA) frá árinu 2016. Hann hefur einnig verið meðlimur í Alþjóðaólympíunefndinni (IOC) frá árinu 2020. Infantino er fæddur í Brig í Sviss en er einnig með ítalskt og líbanskt ríkisfang.
Æviágrip
[breyta | breyta frumkóða]Gianni Infantino vann áður hjá Knattspyrnusambandi Evrópu (UEFA) og var skipaður yfirmaður lögfræðisviðs þess árið 2004. Hann varð síðar aðstoðarframkvæmdastjóri UEFA og safnaði í kringum sig kjarna samstarfsfólks sem fylgdi honum síðar til FIFA.[1] Infantino varð framkvæmdastjóri UEFA árið 2009 og hóf í því embætti náið samstarf við Evrópusambandið, Evrópuráðið og stjórnvöld í aðildarríkjum evrópska knattspyrnusambandsins.[2]
Infantino bauð sig fram til forseta Alþjóðaknattspyrnusambandsins (FIFA) árið 2016, eftir að Sepp Blatter neyddist til að segja af sér árið áður vegna spillingarmála. Handvalinn eftirmaður Blatters, fyrrum fótboltastjarnan og forseti UEFA, Michel Platini, gat ekki gefið kost á sér vegna tengsl við spillingarmálin.[3] Infantino var kjörinn nýr forseti FIFA í febrúar árið 2016.[3] Við kjör sitt hét Infantino því að bætt yrði úr spillingunni sem hafði einkennt stjórnartíð Blatters.[1]
Aðeins um fjórum mánuðum eftir að Infantino tók við sem forseti FIFA var hann sakaður um að brjóta gegn siðareglum sambandsins vegna skjals sem lekið var sem sýndi fram á ólögmæta eyðslu hans af fé FIFA í fé, hótelgistingu og fleira. Infantino neitaði sök og málið var ekki tekið til rannsóknar af siðanefnd sambandsins. Þegar Panamaskjölunum var lekið árið 2016 var Infantino bendlaður við óeðlilega samninga UEFA. Hann hafði skrifað undir samning um sölu á sýningarrétti á Meistaradeild Evrópu í Ekvador frá 2006 til 2009 við félagið Cross Trading, sem greiddi 11 þúsund bandaríkjadali fyrir réttinn en seldi hann síðan strax áfram fyrir 311 þúsund dali. Í frétt þýska miðilsins Süddeutsche Zeitung árið 2022 var greint frá því að Infantino hefði flogið til New York vegna samninganna á sínum tíma en hafi afvegaleitt UEFA um tilgang fundarins.[3]
Eftir að Infantino tók við sem forseti lét hann reka fjölda nefndarmanna úr stjórnarnefnd FIFA og upphóf bandamenn sína í þeirra stað. Miguel Maduro, einn þeirra sem missti sæti sitt í nefndinni, sagðist telja Infantino hafa rekið sig vegna þess að hann hafði krafist þess að Vítalíj Mútko, fyrrum aðstoðarforsætisráðherra Rússlands, yrði meinaður aðgangur að ráði FIFA þar sem staða hans bryti í bága við reglur um pólitískt hlutleysi. Infantino sæmdi Vladímír Pútín Rússlandsforseta vináttuorðu eftir að Rússar héldu heimsmeistaramótið í knattspyrnu karla 2018.[1]
Í aðdraganda heimsmeistaramótsins 2022, sem haldið var í Katar, flutti Infantino til Katar ásamt fjölskyldu sinni og skráði tvær dætur sína til náms í katörskum skólum. Fyrir flutninginn sættu Infantino og FIFA rannsókn svissneskra yfirvalda vegna spillingar og Infantino hafði sumarið 2020 átt leynilega fundi með svissneska ríkissaksóknaranum Michael Lauber þar sem rætt var um rannsóknina. Einsdæmi var að forseti FIFA flytti alfarið til gestgjafaríkis heimsmeistarakeppninnar til að aðstoða við undirbúning hennar.[3]
Valið á Katar sem gestgjafaríki heimsmeistarakeppninnar 2022 var mikið gagnrýnt vegna stöðu mannréttinda í landinu. Árið 2021 greindu fjölmiðlar frá því að minnst 6.500 farandverkamenn frá Indlandi, Nepal, Pakistan, Bangladess og Srí Lanka hefðu dáið við byggingar leikvanga fyrir mótið. Í þrumuræðu sem Infantino flutti í nóvember 2022 tók hann til varna fyrir Katar og sakaði Vesturlönd um hræsni með gagnrýni þeirra á landið.[4] Í ræðunni sagði Infantino að sér liði sjálfum eins og samkynhneigðum og farandverkamanni þegar hann var spurður um réttindastöðu þessara hópa í Katar.[5]
Infantino átti drjúgan þátt í að koma því til leiðar að samþykkt var að heimsmeistaramótið 2036 skyldi haldið í Sádi-Arabíu.[6]
Laun Infantinos rúmlega þrefölduðust á fyrsta áratugi hans í embætti forseta FIFA.[7] Þrátt fyrir að Infantino hafi stillt sér upp sem umbótamanni þegar hann tók við embættinu af Sepp Blatter hefur hann í seinni tíð sætt ásökunum um að vinda ofan af þeim umbótum sem gerðar voru eftir afsögn Blatters.[8]
Í aðdraganda heimsmeistaramótsins 2026, sem haldið er í Bandaríkjunum, Kanada og Mexíkó, vingaðist Infantino óspart við Donald Trump Bandaríkjaforseta. Í desember 2026 veitti Infantino Trump nýstofnuð verðlaun, „friðarverðlaun FIFA“, þegar dregið var í riðla fyrir mótið.[9] Í 16 liða úrslitum keppninnar var leikbanni sem bandaríski framherjinn Folarin Balogun hafði fengið eftir rautt spjald frestað eftir að Trump hringdi í Infantino og sagðist telja rauða spjaldið ósanngjarnt. Trump stærði sig af því að hafa fengið banninu hnekkt með því að hafa samband við Infantino.[10] Infantino viðurkenndi að Trump hefði rætt við hann um málið en sagðist ekki hafa haft nein afskipti af sjálfstæðum dómnefndum FIFA.[11]
Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- 1 2 3 „Maðurinn sem boðaði breytingar en villtist af leið“. mbl.is. 7. júní 2026. Sótt 8. júní 2026.
- ↑ „Takast á um sæti Blatters“. Morgunblaðið. 29. október 2015. bls. 17.
- 1 2 3 4 Valur Páll Eiríksson (17. nóvember 2022). „Átti að hreinsa upp skítinn en fær nú hæli í Katar“. Vísir. Sótt 11. júní 2026.
- ↑ „Forseti FIFA kemur Katar til varnar - „Á erfitt með að skilja þessa gagnrýni"“. Fótbolti.net. 19. nóvember 2022. Sótt 10. júní 2026.
- ↑ „Neville: Infantino er hrikalegt andlit fyrir fótboltann“. Fótbolti.net. 21. nóvember 2022. Sótt 10. júní 2026.
- ↑ Valur Páll Eiríksson (15. desember 2024). „Utan vallar: Þetta er að gerast aftur“. Vísir. Sótt 8. júní 2026.
- ↑ Valur Páll Eiríksson (1. maí 2026). „Laun Infantino meira en þrefaldast á áratug“. Vísir. Sótt 8. júní 2026.
- ↑ Kjartan Kjartansson (15. maí 2024). „FIFA byrjað að vinda ofan af umbótum eftir spillingarhneykslið“. Vísir. Sótt 8. júní 2026.
- ↑ Aron Guðmundsson (9. desember 2025). „Saka forseta FIFA um ítrekuð brot og fara fram á rannsókn“. Vísir. Sótt 8. júní 2026.
- ↑ Sindri Sverrisson (6. júlí 2026). „Trump um símtalið til Infantino: „Ég fékk þá til að gera þetta"“. Vísir. Sótt 8. júní 2026.
- ↑ „Yfirlýsing frá forseta FIFA“. mbl.is. 6. júlí 2026. Sótt 6. júlí 2026.