Galtará
Útlit
Galtará er bergvatnsá á Eyvindarstaðaheiði. Hún kemur upp í Galtarárdrögum og fellur í Blöndu. Í kvæðinu Ferðalok eftir Jónas Hallgrímsson kemur Galtará fyrir en Jónas mun hafa haft þar náttstað. Skagfirðingavegur liggur yfir Galtárá við Galtarárdrög. Í ljóðinu eru þessar línur:
- Greiddi eg þér lokka
- við Galtará
- vel og vandlega.
- Brosa blómvarir,
- blika sjónstjörnur,
- roðnar heitur hlýr.
Heimildir
[breyta | breyta frumkóða]- Landið þitt Ísland, Þorsteinn Jósepsson Steindór Steindórsson 1980
- Ferðalok (ljóð eftir Jónas Hallgrímsson)