Gígjökull

Gígjökull (eða Falljökull [1]) er annar tveggja skriðjökla sem renna úr Eyjafjallajökli, en hinn er Steinsholtsjökull. Þeir skríða báðir til norðurs í Þórsmörk. Gígjökull er niður undir gömlum gíg sem er í jöklinum. Vatnið sem jökullinn skreið fram í hét Lónið en það hvarf í eldgosinu 2010.
Árið 1964 fundust mannsleifar á Gígsjökli, þ.e. lærleggur úr manni ásamt hælbeini og einum leðurskó. Um 50 metra frá beinunum fundu menn svo giftingarhring sem sýndi að viðkomandi hafði gift sig þann 29. ágúst 1928.[2] Líkið reyndist vera af manni úr áhöfn bandarískrar flugvélar sem fórst í flugslysinu á Eyjafjallajökli 1952 og fundust lík þriggja annarra úr áhöfninni á jöklinum í 20. ágúst 1966.[3]
Seinna var Gígjökull notaður sem æfingasvæði til að æfa björgun af jökli.[4]
Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ Guðmundur Kjartansson (1968). „Steinholtshlaupið 15. janúar 1967“. Náttúrufræðingurinn. 37 (3–4): 122.
- ↑ „Fundu leifar af mannslíkama á Eyjafjallafjökli“. Alþýðublaðið. 26. maí 1964. bls. 16.
- ↑ „Þrjú lík bandarískra flugmanna fundust uppi á Eyjafjallajökli“. Vísir. 22. ágúst 1966. bls. 1.
- ↑ „Gígjökull Eyjafjallajökuls“. Morgunblaðið. 31. mars 1983. bls. 60.