Friðurinn (leikrit)
Útlit
Friðurinn (á forngrísku: Εἰρήνη (Eirēnē); á latínu: Pax) er gamanleikur eftir forngríska gamanleikjaskáldið Aristófanes. Það var fyrst sett á svið árið 421 f.Kr. og vann til annarra verðlauna á Díonýsosarhátíðinni í Aþenu það ár. Í leikritinu gerir Aristófanes meðal annars grín að harmleikjaskáldinu Evripídesi og stjórnmálamanninum Kleoni.
Varðveitt verk Aristófanesar
Akarníumenn | Riddararnir | Skýin | Vespurnar | Friðurinn | Fuglarnir | Lýsistrata | Konur á Þesmófóruhátíð | Froskarnir | Þingkonurnar | Auðurinn
|
---|