Fara í innihald

Francisco Solano López

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Francisco Solano López
López ca. 1862.
Forseti Paragvæ
Í embætti
10. september 1862 – 1. mars 1870
VaraforsetiDomingo Francisco Sánchez
ForveriCarlos Antonio López
EftirmaðurHernámsstjórn
Persónulegar upplýsingar
Fæddur24. júlí 1827(1827-07-24)[1]
Asúnsjón, Paragvæ
Látinn1. mars 1870 (42 ára) Cerro Corá, Paragvæ
ÞjóðerniParagvæskur
MakiEliza Lynch
HáskóliÉcole spéciale militaire de Saint-Cyr
Undirskrift

Francisco Solano López Carrillo (24. júlí 1827 – 1. mars 1870) var forseti Paragvæ frá 1862 til dauðadags árið 1870. Hann var elsti sonur paragvæska forsetans Carlos Antonio López og tók við forsetaembættinu í föðurarf.

López er af mörgum talinn ábyrgur fyrir Paragvæstríðinu, þar sem rúmur helmingur allra íbúa Paragvæ fórst. Stríðinu lauk þegar López sjálfur féll í valinn í orrustu við Cerro Corá. Aðrir telja López aftur á móti hafa verið djarfan baráttumann fyrir sjálfstæði Paragvæ á móti erlendum fjárhagsmunum og líta á hann sem þjóðhetju.

Francisco Solano López fæddist í Asúnsjón og var skipaður fylkishershöfðingi þegar hann var 18 ára gamall.[2] Árið 1853 var hann sendur sem sendifulltrúi til Evrópu, þar sem hann heimsótti Bretland, Frakkland og Ítalíu. Hann var erlendis í eitt og hálft ár og keypti mikið magn vopna og birgða í ferðinni. Hann lagði einnig á ráðin um byggingu járnbrautar og um aðflutninga Frakka til Paragvæ. López hreifst af Napóleon 3. og af minningunni um frænda hans, Napóleon Bónaparte.[3] López líkti til dæmis eftir einkennisbúningum hermanna Napóleons og sagt er að hann hafi látið gera nákvæma eftirlíkingu af kórónu Napóleons.[4] Í París kynntist hann vændiskonunni Elizu Lynch, sem hann tók með sér heim til Paragvæ. Þar varð hún ástkona hans og í reynd forsetafrú landsins það sem hann átti eftir ólifað og hafði mikil áhrif á stjórnmálastefnu hans.

Þegar López kom heim til Paragvæ árið 1855 var hann skipaður stríðsmálaráðherra og síðar varaforseti landsins.[5] Þegar Carlos Antonio López, faðir Solano López, lést árið 1862 kallaði López saman þing landsins, sem kaus hann forseta til tíu ára.[3]

Aðdragandi stríðsins

[breyta | breyta frumkóða]

Árið 1864 versnaði samband Paragvæ við Brasilíu til muna þegar Brasilíumenn hófu að styðja uppreisn í Úrúgvæ undir forystu Venancio Flores gegn ríkisstjórn Atanasio Aguirre, sem var bandamaður Paragvæ.[6] Úrúgvæska stjórnin biðlaði til Paragvæ um herstuðning. López sendi Brasilíu tilkynningu um að ef Úrúgvæ yrði hertekið myndi hann líta á það sem árás á Paragvæ.[7] Þegar Brasilía svaraði ekki kröfum López haldlagði López brasilíska kaupskipið Marqués de Olinda, sem var við höfn í Asúnsjón[8] og tók fylkisstjóra brasilíska fylkisins Mato Grosso, sem var um borð, til fanga. Næsta mánuð (í desember 1864) lýsti López formlega yfir stríði gegn Brasilíu og sendi herafla til að ráðast á Mato Grosso. Paragvæski herinn lagði undir sig bæinn Corumbá og lét greipar sópa um fylkið, meðal annars demantanámur þess, og lagði hald á mikið magn vopna.[9] Paragvæjum tókst hins vegar ekki að leggja undir sig fylkishöfuðborgina Cuiabá í norðurhluta Mato Grosso.

López sendi næst hermenn til Úrúgvæ til að styðja bandamenn sína þar. Til að komast þangað varð herinn hins vegar að fara yfir argentínska héraðið Corrientes en Bartolomé Mitre, forseti Argentínu, neitaði að hleypa þeim í gegnum landið.[8] Uppreisnarmenn voru þá búnir að sigra stjórn Aguirre í Úrúgvæ og Venancio Flores hafði verið settur á valdastól sem leppstjórnandi Brasilíumanna.[2] López lét sæma sjálfan sig titli hermarskálks og tók sér sérstakar valdheimildir svo lengi sem stríðið varði. Þann 13. apríl 1865 lýsti López yfir stríði gegn Argentínu. Þann 1. maí undirrituðu Brasilía, Argentína og Úrúgvæ formlega samning um myndun svonefnds þríveldabandalags, sem fól í sér að ekki yrði samið um frið fyrr en búið væri að kollvarpa stjórn López í Paragvæ.

Þríveldastríðið

[breyta | breyta frumkóða]

Stríðið sem fylgdi í kjölfarið varði til 1. mars 1870 og varð blóðugasta stríð í sögu Rómönsku Ameríku. Miklar sviptingar urðu á tíma átakanna. Þann 12. september 1866 bauð López Mitre Argentínuforseta til fundar í Yatayty Corá. López gerði ráð fyrir því að Mitre yrði opinn fyrir friðarviðræðum[10] og að hægt yrði að komast að friðarsamkomulagi.[11] Í samningnum um þríveldabandalagið höfðu aðildarríkin hins vegar skuldbundið sig til að semja ekki um frið án samráðs við hin fyrr en búið væri að koma á stjórnarskiptum í Paragvæ.[12]

Eftir því sem stríðið dróst á langinn jókst óánægja almennings í Paragvæ með López. Árið 1868, þegar Paragvæ átti í vök að verjast gegn sókn bandamanna, sannfærðist López um að stuðningsmenn hans í Paragvæ væru að brugga launráð gegn honum. Hann lét því handtaka og taka af lífi nokkur hundruð paragvæskra borgara, þar á meðal bræður sína og mága, ráðherra, dómara, héraðsstjóra, herforingja, biskupa og presta, níu tíundu allra borgaralegra embættismanna og rúmlega tvö hundruð útlendinga, þar á meðal meðlimi í erlendum sendinefndum. Á þessum tíma lét López einnig hýða 70 ára gamla móður sína og skipaði aftöku hennar af því að hún viðurkenndi fyrir honum að hann hefði fæðst utan hjónabands.[13]

Orrustan við Cerro Corá

[breyta | breyta frumkóða]

Þegar ríki þríveldabandalagsins réðust inn í Paragvæ neyddist López til að flýja frá höfuðborginni Asúnsjón með hópi stuðningsmanna sinna og hélt áfram mótspyrnu á gresjunum í norðurhluta landsins. Þann 14. febrúar 1870 kom hann til Cerro Corá. Tvær brasilískar herfylkingar veittu López, sem hafði safnað saman 200 manna liðsafla, eftirför þangað.[14]

López ákvað að berjast til síðasta blóðdropa gegn brasilísku hermönnunum.[15] Í lokaorrustunni særðist hann og margir liðsforingjar hans yfirgáfu hann.[16] Brasilíski hershöfðinginn Câmara skipaði López að gefast upp en López neitaði og hrópaði Muero con mi patria! (Ég dey með landi mínu!).[17] Hann reyndi að höggva til Câmara með sverði sínu en fórst í átökunum.[18] Þríveldastríðinu lauk með dauða López.

Söguleg eftirmæli

[breyta | breyta frumkóða]

Í Paragvæ er deilt um það hvort López hafi verið frækinn leiðtogi eða hvort hann hafi leitt landið út í stríð sem það átti enga möguleika á að vinna og lagði landið nánast í rúst. Á tíma einræðisstjórnar Alfredo Stroessner var nafni López haldið mjög á lofti. Sumir sagnfræðingar líta á López sem baráttumann smáþjóða Suður-Ameríku. Til dæmis hélt úrúgvæski sagnfræðingurinn Eduardo Galeano því fram að López hefði haldið áfram því starfi sem þjóðarleiðtoginn José Gaspar Rodríguez de Francia hóf með því að viðhalda Paragvæ sem „eina ríkinu sem erlent fjármagn [hefði] ekki afskræmt“.[19]

Fyrsti mars er haldinn hátíðlegur í Paragvæ sem „hetjudagurinn“ (sp. Dia de los Heroes) í minningu um López. Dagurinn er næstmikilvægasti hátíðisdagur landsins á eftir þjóðhátíðardeginum. Jarðneskar leifar López eru geymdar í svonefndri hetjuhvelfingu (Panteon de los Heroes) í Asúnsjón.

Árið 2007 lét argentínski forsetinn Cristina Kirchner nefna herdeild í höfuðið á Francisco Solano López.[20] Dagblaðið La Nación, sem stofnað var af Bartolomé Mitre, gagnrýndi nafngiftina og sagði um hana: „Það að nefna herdeild eftir einræðisherra sem traðkaði á argentínska fánanum er álíka fjarstæðukennt og ef Frakkland eða Pólland nefndi eina af herveitum sínum Adolf Hitler.“[21]

Bústaður forseta Paragvæ er nefndur López-höllin (Palacio de López) þar sem López lét byggja hann fyrir stríðið. Ekki var þó lokið við bygginguna fyrr en eftir stríðslok og López bjó aldrei þar.

Tilvísanir

[breyta | breyta frumkóða]
  1. ↑ „Francisco Solano López“. Portal Guarni (spænska). Afrit af upprunalegu geymt þann 11 júní 2023. Sótt 7. desember 2023.
  2. 1 2 Hanratty, Dannin M. and Meditz, Sandra W., editors. Paraguay: A Country Study. Washington: GPO for the Library of Congress, 1988.
  3. 1 2 Hanratty
  4. ↑ Shaw, Karl (2005) [2004]. Šílenství mocných (tékkneska). Praha: Metafora. bls. 29–30. ISBN 80-7359-002-6.
  5. ↑ „Gallery“. Embætti varaforseta Paragvæ. Afrit af upprunalegu geymt þann 29 júní 2012.
  6. ↑ Vasconsellos, Victor N. Resumen de Historia del Paraguay. Delimitaciones Territoriales’’, Industria Grafica Comuneros S.A. Asunción, Paraguay, 1970, bls 107.
  7. ↑ Vasconsellos bls. 107.
  8. 1 2 Vasconsellos, bls. 108.
  9. ↑ Washburn,Charles A. "History of Paraguay" Lee and Shepard, Publishers. 1871. 2. bindi, bls. 9.
  10. ↑ Cardozo, Efrain. „Breve Historia del Paraguay“. El Lector. 1996, bls. 87
  11. ↑ Vasconsellos, bls. 108
  12. ↑ „Tratado Secreto de la Triple Alianza“. Sótt 27. september 2009.[óvirkur tengill] [óvirkur tengill]
  13. ↑ Shaw, Karl (2005). Šílenství mocných (tékkneska). Praha: Metafora. bls. 11–12. ISBN 8073590026.
  14. ↑ Bareiro Saguier, Ruben; Villagra Marsal, Carlos. Testimonios de la Guerra Grande. Muerte del Mariscal López. Tomo I, Editorial Servilibro. Asuncion, Paraguay, 2007, bls. 66.
  15. ↑ Bareiro, bls. 66.
  16. ↑ Bareiro, bls. 68; 80.
  17. ↑ Bareiro, bls. 70, 82, 98.
  18. ↑ Bareiro, bls. 90.
  19. ↑ Eduardo Galeano, Open Veins of Latin America, Monthly Review Press, New York, 1973, 1997, bls. 188–189.
  20. ↑ „Bautizan unidad militar Argentina en honor al prócer paraguayo Mariscal Francisco Solano López“. Afrit af upprunalegu geymt þann 22. janúar 2008. Sótt 27. oktober 2009. „Geymt“. Afritað af uppruna á 22 janúar 2008. Sótt 23 febrúar 2012.
  21. ↑ La Nación, 6. desember 2007.