Fara í innihald

Forsætisráðherra Svíþjóðar

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Forsætisráðherra Svíþjóðar
Sveriges statsminister
Framkvæmdaarmur ríkisstjórnar Svíþjóðar
GerðRíkisstjórnarleiðtogi
Meðlimur
Opinbert aðseturSager-hús
Harpsund
SætiRosenbad, Stokkhólmi, Svíþjóð
Tilnefndur afSænska þinginu
Skipaður afForseta þingsins
LagaheimildStjórnarskrá Svíþjóðar
Stofnun20. mars 1876; fyrir 150 árum (1876-03-20)
Fyrsti embættishafiLouis Gerhard De Geer
StaðgengillAðstoðarforsætisráðherra
Laun204.000 kr. á mánuði
Vefsíðawww.regeringen.se

Forsætisráðherra Svíþjóðar (sænska: Sveriges statsminister) er ríkisstjórnarleiðtogi Svíþjóðar. Forsætisráðherrann og ríkisstjórn hans fara með framkvæmdavaldið í Svíþjóð og eru ábyrg gagnvart sænska þinginu. Forsætisráðherrann er tilnefndur af forseta þingsins og er kjörinn af þinginu með einföldum meirihluta. Þingkosningar eru haldnar á fjögurra ára fresti.[1]

Líkt og mörg svipuð embætti í Evrópu varð sænska forsætisráðherraembættið til á 19. öld samhliða auknu lýðræði í Svíþjóð. Áður en embættið var stofnað átti landið engan opinberan ríkisstjórnarleiðtoga fyrir utan konunginn og landið var á köflum óskorað einveldi. Nokkrir einstaklingar höfðu þó í reynd gegnt forystuhlutverki innan ríkisstjórnarinnar. Í dag er forsætisráðherrann valdamesti stjórnmálamaður Svíþjóðar.

Ólíkt forsætisráðherrum flestra þingræðisríkja er forsætisráðherra Svíþjóðar bæði formlega og í framkvæmd æðsti handhafi framkvæmdavaldsins. Þetta er vegna þess að samkvæmt stjórnarskrá landsins fer ríkisstjórn Svíþjóðar, sem forsætisráðherrann veitir forstöðu, með framkvæmdavaldið. Forsætisráðherrann á tvö opinber aðsetur; Sager-húsið og Harpsund.[2]

Tilvísanir

[breyta | breyta frumkóða]
  1. ↑ „Start“. www.riksdagen.se (enska). Sótt 10 nóvember 2023.
  2. ↑ Burcher, Priscilla (27 ágúst 2018), Sager House, the official residence of the Prime Minister of Sweden, sótt 10 nóvember 2023
  Þessi stjórnmálagrein sem tengist Svíþjóð er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.