Formúla 2
Formúla 2 er kappakstursmeistaramótaröð sem er á vegum Fédération Internationale de l'Automobile (FIA). FIA Formúlu 2 meistaramótaröðin (FIA Formula 2 Championship) var stofnuð árið 2017 sem tók við af GP2 mótaröðinni. Sú meistaramótaröð er því ný á nálinni en saga Formúlu 2 nær hins vegar til ársins 1948.
Saga
[breyta | breyta frumkóða]Fyrstu árin (1948–1960)
[breyta | breyta frumkóða]Árið 1948 var fyrst formlega farið að keppa í Formúlu 2 sem hét fyrst Formúla B. Bílarnir voru ódýrari, minni og léttari heldur en þeir sem kepptu í Formúlu 1. Árið 1957 fóru keppendur í Formúlu 2 að keyra með 1,5 lítra vélar í bílum sínum. Vélarnar áttu að vera öflugari heldur en þær sem voru á undan komu. Árin voru ekki mörg með þær vélar og keppni í Formúlu 2 var hætt fyrst árið 1960. Formúla Yngri (Formúla Junior) tók yfir mótaröðina og sem tók líka yfir Formúlu 3.
Snýr aftur (1964–1984)
[breyta | breyta frumkóða]Formúla 2 sneri aftur til leiks árið 1964 sem og Formúlu 3. Frá árinu 1964 til 1966 var keppt með 1 lítra vélum í Formúlu 2 en árið 1967 kynnti FIA 1600cc vélarnar til leiks. Þær vélar voru mun öflugari og vinsælari. Þekktir vélarframleiðendur á þeim tíma í Formúlu 2 voru Ferrari, BMW og Cosworth. Árið 1972 fóru keppendur að keppa með 2.0 lítra vélum. Formúla 2 hætti síðan aftur árið 1984 þegar Formúla 3000 tók við.[1] Formúla 3000 var til ársins 2004. Þá tók GP2 mótaröðin við árið 2005.
FIA Formúlu Tvö meistaramótaröðin (2009–2012)
[breyta | breyta frumkóða]Formúla 2 sneri aftur eftir 25 ára fjarveru árið 2009 þrátt fyrir að GP2 mótaröðin væri enn starfandi. Meistaramótaröðin var framkvæmd af Jonathan Palmer fyrrverandi ökumanns í Formúlu 1 og undir hans fyrirtæki sem heitir MotorSport Vision. Bílarnir voru ekki eins öflugir og í GP2 mótaröðinni og meistaramótaröðin átti að vera fyrir þá sem áttu erfiðara með að ná í fjármagn fyrir kostnaðinum sem fylgdi stóru mótaröðunum sem voru undir FIA. Meistamótaröðin var ekki langlíf og hætti árið 2012.[2]
FIA Formúlu 2 meistaramótaröðin (2017–)
[breyta | breyta frumkóða]FIA Formúlu 2 meistaramótaröðin tók við af GP2 mótaröðinni árið 2017 og er í dag fremsta skref ökumanna sem vilja komast í Formúlu 1. Franco Colapinto, Oscar Piastri, Charles Leclerc, Lando Norris og George Russell sem keppa núna í Formúlu 1 kepptu áður í FIA Formúlu 2 meistaramótaröðinni áður en þeir fóru í Formúlu 1.
Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ Žišková,Tatiana (2. nóvember 2023). „The history of Formula Two“. F1 Hoes Magazine. Sótt 29. september 2024.
- ↑ Booth, Dominic (18. mars 2023). „What is Formula 2? History, past champions, drivers and status of F1 second tier competition“. The Sporting News. Sótt 29. september 2024.