Fahd bin Abdul Aziz al-Sád
Útlit
Fahd bin Abdul Aziz al-Sád, (arabíska: فهد بن عبد العزيز آل سعود), (fæddur 1921 – 1. ágúst 2005) var konungur og forsætisráðherra Sádí-Arabíu og höfuð Sád-ættarinnar. Hann var frá Ríad.
Fahd varð konungur árið 1982 þegar hálfbróðir hans, Khalid bin Abdul Aziz al-Sád, lést. Hann hafði þá þegar haft stjórnartaumana í hendi sér lengi þar sem Khalid hafði lítinn áhuga á stjórnmálum.
Fahd fékk síðan hjartaáfall árið 1995 og gat eftir það ekki sinnt opinberum skyldum sínum. Hálfbróðir hans, Abdúlla bin Abdul Aziz al-Sád, var því ríkisstjóri þar til Fahd lést og Abdúlla tók formlega við konungstign.
Fahd er sá konungur sem lengst hefur setið á stóli í sögu Sádí-Arabíu.
Fyrirrennari: Khalid bin Abdul Aziz al-Sád |
|
Eftirmaður: Abdúlla bin Abdul Aziz al-Sád |