Fótboltafélagið Hvöt
Útlit
Hvöt | |||
Fullt nafn | Hvöt | ||
Stofnað | 1914 | ||
---|---|---|---|
Lagt niður | 1916 | ||
Leikvöllur | Hrossataðsvellir, Tangstún og Riistún | ||
Stærð | Óþekkt | ||
|
Fótboltafélagið Hvöt var fyrsta knattspyrnufélag kvenna á Íslandi. Það var stofnað árið 1914 á Ísafirði[1] og fyrsta stjórn þess var skipuð af Guðrúnu Skúladóttur, formanni, Bergþóru Árnadóttur og Ingibjörgu Helgadóttur en leiðbeinandi liðsins var Einar Oddur Kristjánsson, gullsmiður. Félagið starfaði á árunum 1914 til 1916 og kepptu stúlkurnar innbyrðis auk þess sem þær kepptu við strákafélög í bænum, svokölluð "púkafélög".[2][3]
Heimildir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ Steinþór Guðbjartsson (1. júní 2017). „Konurnar fyrstar á Ísafirði“. Morgunblaðið. Sótt 3. desember 2018.
- ↑ Sigurður Pétursson (2017). Knattspyrnusaga Ísfirðinga. Púkamót, félag. bls. 29–30. ISBN 978-9935-24-189-4.
- ↑ Skapti Hallgrímsson (9. júlí 2017). „Stúlkur á Ísafirði brutu ísinn 1914“. Morgunblaðið. Sótt 3. desember 2018.