Fara í innihald

Gríska

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
(Endurbeint frá Elinika)
Gríska
Ελληνικά
Ellinika
Málsvæði Grikkland, Kýpur, Albanía, Ástralía, Norður-Makedónía, Tyrkland, Búlgaría, Rúmenía, Ítalía, Spánn, Armenía, Líbanon, Georgía, Egyptaland, Jórdanía, Bretland, Bandaríkin, Úkraína, Rússland, Suður-Afríka, Kasakstan, Frakkland ásamt öðrum löndum
Heimshluti Austur-Evrópa, Vestur-Evrópa og Asía
Fjöldi málhafa 17 milljónir
Sæti 52
Ætt Indóevrópskt

 Forngríska
  Gríska

Skrifletur Grískt stafróf
Opinber staða
Opinbert
tungumál
Fáni Grikklands Grikkland
Fáni Kýpur Kýpur
Fáni ESB Evrópusambandið
minnihlutamál á:
Fáni Albaníu Albaníu
Fáni Ítalíu Ítalíu
Stýrt af engum
Tungumálakóðar
ISO 639-1 el
ISO 639-2 gre
SIL ELL
ATH: Þessi grein gæti innihaldið hljóðfræðitákn úr alþjóðlega hljóðstafrófinu í Unicode.
Wikipedia
Wikipedia
Wikipedia: Gríska, frjálsa alfræðiritið

Gríska (gr. Ελληνικά, Ellinika) er indó-evrópskt tungumál sem talað er í Grikklandi og á Kýpur. Gríska er rituð með grísku letri.

Grískir orðstofnar eru mikið notaðir í vísindaorðum í mörgum tungumálum. Dæmi um orð í íslensku sem eiga rætur að rekja til Grikklands: Atóm, biblía, biskup, pólitík, sófisti. Gríska hefur haft minni bein áhrif á íslensku en flest önnur evrópsk tungumál, til að mynda ensku.

Eins og gefur að skilja er grísku skipt upp í margar mállýskur og tímabil. Elstu textar eru frá 1500 f.Kr. Þessir elstu textar eru ritaðir með tveimur letrum, línuletri A og línuletri B, og hefur einungis tekist að ráða annað þeirra eða línuletur B. Óvíst er hvort línuletur A er gríska. Þessir elstu textar komu fyrst í leitirnar við fornleifauppgröft á Knossos á Krít um aldamótin 1900 en fundust síðar ennfremur í Pýlos, Tiryns og Mýkenu á Pelopsskaga og víðar.

Hvað varðar tímabil er grísku oft skipt í fimm skeið: mýkeníska grísku (1500 – 1100 f.Kr.), klassíska grísku (800 – 300 f.Kr.), helleníska grísku (300 f.Kr. – 300 e.Kr.), miðgrísku (300 – 1100) og nýgrísku (1600 – ).

Forngrískum mállýskum er oftast skipt í vestrænar og austrænar mállýskur.

Austurgrískar teljast attíska, jóníska, æólíska og kýpríska en til vestrænna mállýskna teljast meðal annars dórískan.

Forngríska hafði fimm föll nafnorða: nefnifall, ávarpsfall, eignarfall, þágufall og þolfall. Í dag er þágufallið að mestu horfið (nema í föstum orðasamböndum). Líkt og í germönskum málum hefur tvítalan lagst af. Gríska stafrófið er leitt af fönikísku stafrófi.

  • „Er einhver munur á forngrísku og nýgrísku?“. Vísindavefurinn.
  • Lítil árétting um rithátt grískra orða; birtist í Morgunblaðinu 1992 Geymt 8 apríl 2022 í Wayback Machine