Fara í innihald

Einræðisherrann

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Einræðisherrann
The Great Dictator
Auglýsingaplakat fyrir myndina.
LeikstjóriCharlie Chaplin
HöfundurCharlie Chaplin
FramleiðandiCharlie Chaplin
Leikarar
Kvikmyndagerð
KlippingWillard Nico
TónlistMeredith Willson
FyrirtækiCharles Chaplin Film Corporation
DreifiaðiliUnited Artists
Frumsýning
  • 15. október 1940 (1940-10-15) (New York-borg)
Lengd125 mínútur[1]
LandBandaríkin
TungumálEnska
Ráðstöfunarfé$2,2 milljónir[2]
Heildartekjur$5 milljónir (á heimsvísu)[3]

Einræðisherrann (enska: The Great Dictator) er bandarísk kvikmynd frá árinu 1940 sem Charlie Chaplin skrifaði, leikstýrði, framleiddi og lék aðalhlutverkið í. Chaplin hafði verið eini umsvifamikli kvikmyndagerðarmaðurinn í Hollywood sem enn var að gera þöglar myndir svo löngu eftir tilkomu hljóðmynda en Einræðisherrann var fyrsta eiginlega hljóðmyndin sem hann gerði.

Einræðisherrann er pólitísk ádeila og svartkómedía þar sem Chaplin fordæmir einræðisherrana Adolf Hitler og Benito Mussolini og hugmyndafræði þeirra, fasisma, gyðingahatur og nasisma. Þegar myndin var frumsýnd var seinni heimsstyrjöldin nýlega byrjuð en Bandaríkin voru enn formlega hlutlaus. Chaplin lék báðar aðalpersónur myndarinnar: fasískan einræðisherra og rakara af gyðingaþjóðerni.

Einræðisherrann naut mikilla vinsælda og varð arðbærasta kvikmynd Chaplins.[4] Gagnrýnendur seinni tíma hafa bent á myndina sem eina bestu gamanmynd allra tíma og sem mikilvægt ádeiluverk. Árið 1997 mat Þjóðskjalasafn Bandaríkjanna myndina „menningarlega, sögulega eða fagurfræðilega mikilvæga“ og valdi hana til varðveislu í kvikmyndasafninu National Film Registry.[5][6] Einræðisherrann var tilnefnd til fimm Óskarsverðlauna, fyrir bestu myndina, besta leikarann, besta handritið, besta aukaleikarann og bestu tónlistina.

Í sjálfsævisögu sinni árið 1964 sagði Chaplin að hann hefði ekki gert myndina ef hann hefði vitað á þessum tíma hve langt helförin gekk.[7]

Söguþráður

[breyta | breyta frumkóða]

Myndin hefst árið 1918 á vesturvígstöðvum fyrri heimsstyrjaldarinnar, þar sem hermaður af gyðingaþjóðerni er að berjast fyrir miðveldaríkið Tómaníu. Hermaðurinn bjargar særðum herflugmanni, Schultz liðsforingja, sem er með mikilvæg skjöl sem hann segir að geti tryggt sigur Tómaníu. Flugvél þeirra verður hins vegar eldsneytislaus og brotlendir í tré og hermaðurinn missir minnið. Þegar þeim er bjargað fréttir Schultz að Tómanía sé búin að gefast upp fyrir bandamönnum en gyðingurinn er fluttur á sjúkrahús.

Chaplin sem Adenoid Hynkel

Tuttugu árum síðar snýr hermaðurinn, sem enn þjáist af minnisleysi, aftur til fyrri starfa sinna sem rakari í gettói gyðinga. Gettóið er nú undir stjórn Schultz, sem hefur hlotið stöðuhækkun innan tómanísku stjórnarinnar, sem er orðin að einræðisstjórn undir forystu hins grimma Adenoid Hynkel. Rakarinn verður ástfanginn af nágrannakonu sinni, Hönnu, og saman reyna þau að berjast gegn kúgun stjórnarinnar. Stormsveitarliðar handtaka rakarann og búa sig undir að lífláta hann en Schultz ber kennsl á hann og segir þeim að hætta. Með því að bera kennsl á hann og minna hann á fyrri heimsstyrjöldina hjálpar Schultz rakaranum að endurheimta minnið.

Á meðan reynir Hynkel að fjármagna sístærri her sinn með því að fá lán frá bankamanni af gyðingaættum að nafni Hermann Epstein, sem leiðir til þess að dregið er úr kúguninni í gettóinu um stundarsakir. Bankamaðurinn neitar hins vegar að endingu að lána honum féð. Hynkel bregst reiður við og skipar aðför gegn gyðingunum í gettóinu. Schultz mótmælir þessari ómannúðlegu stefnu en er handtekinn og sendur í fangabúðir. Hann sleppur og felur sig hjá rakaranum í gettóinu. Schultz reynir að telja gyðingafjölskylduna á að ráða Hynkel af dögum í sjálfsmorðsárás en Hanna telur þá ofan af því. Hermenn gera leit í gettóinu, handtaka Schultz og rakarann og senda þá báða í fangabúðir. Hanna og fjölskylda hennar flýja til víngarðs í nágrannaríkinu Osterlich.

Hynkel deilir við einræðisherra ríkisins Bakteríu, Benzino Napaloni, um það hvort ríkið eigi að fá að gera innrás í Osterlich. Einræðisherrarnir tveir rífast um sáttmála um skipulagningu innrásarinnar á meðan þeir gæða sér á veglegu hlaðborði, þar sem er meðal annars krukka af ensku sinnepi. Þræturnar snúast upp í matarslag, sem lýkur ekki fyrr en báðir bragða óvart á eldheitu sinnepinu og sættast báðir vegna áfallsins. Eftir að Hynkel undirritar samning við Napaloni skipar hann innrás í Osterlich. Hanna og fjölskylda hennar lenda í sjálfheldu vegna innrásarhersins og hópur hermanna veitist að þeim.

Chaplin sem Adenoid Hynkel (til hægri) og Jack Oakie sem Benzino Napaloni (til vinstri)

Schultz og rakarinn sleppa úr búðunum í stolnum einkennisbúningum. Rakarinn, klæddur eins og Hynkel, koma að landamærunum við Osterlich, þar sem mannfjöldi bíður þess að Hynkel flytji ávarp eftir sigurgöngu. Hinn sanni Hynkel er tekinn í misgripum fyrir rakarann á meðan hann er óeinkennisklæddur á andaveiðum og er rotaður og fluttur í búðirnar. Schultz segir rakaranum að fara upp á ræðupallinn og þykjast vera Hynkel, því það sé eina leiðin til að bjarga lífi þeirra þegar komið er til höfuðborgar Osterlich. Rakarinn lýsir því yfir að hann (sem Hynkel) hafi séð ljósið og biðlar til fjöldans að sýna miskunn og bræðralag. Hann hvetur hermennina til að berjast fyrir frelsi og sameina alþýðuna í nafni lýðræðis.

Rakarinn ávarpar síðan Hönnu: „Líttu upp, Hanna. Mannsandanum hafa sprottið vængir og loks er hann tekinn á flug. Hann flýgur inn í regnbogann, inn í vonarljósið, inn í framtíðina, hina dýrðlegu framtíð sem tilheyrir þér, mér og okkur öllum.“ Hanna heyrir rödd rakarans í útvarpinu. Hún snýr sér að sólarupprásinni og segir við vini sína: „Hlustið.“

Fólkið í gettóinu

[breyta | breyta frumkóða]
  • Charlie Chaplin sem rakarinn, hermaður af gyðingaættum sem barðist í fyrri heimsstyrjöldinni en missti minnið í tvo áratugi. Eftir að hafa bjargað lífi Schultz í stríðinu hittir hann vin sinn á ný í gerbreyttum aðstæðum.
  • Paulette Goddard sem Hanna, nágrannakona rakarans. Hún býr í gettóinu við hliðina á rakarastofunni. Hún styður rakarann gegn tómanísku stormsveitarliðinum. (Goddard var eiginkona Chaplins þegar myndin var gerð.)
  • Maurice Moscovich sem hr. Jaeckel, gamall gyðingur sem vingast við Hönnu. Jaeckel er leigusali rakarastofunnar. Þetta var síðasta mynd Moscovich áður en hann lést, þá 68 ára.
  • Emma Dunn sem frú Jaeckel
  • Bernard Gorcey sem hr. Mann
  • Paul Weigel sem hr. Agar
  • Chester Conklin sem viðskiptavinur rakarans

Fólkið í höllinni

[breyta | breyta frumkóða]
  • Charlie Chaplin sem Adenoid Hynkel, einræðisherra Tómaníu[8] og skopstæling á Adolf Hitler, einræðisherra Þýskalands nasismans,[9] sem skipar stormsveitum sínum að ofsækja gyðingana. Hann lætur handtaka Schutz og rakarann. Hynkel er síðar handtekinn af eigin hermönnum í skóginum við landamærin, sem taka hann í misgripum fyrir rakarann.
  • Jack Oakie sem Benzino Napaloni, einræðisherra Bakteríu og skopstæling á Benito Mussolini, einræðisherra Ítalíu, auk þess sem nafnið er vísun í Napóleon Bónaparte.[9]
  • Reginald Gardiner sem Schultz liðsforingi, tómanískur hermaður sem barðist í fyrri heimsstyrjöldinni og er enn í hernum á fjórða áratugnum. Hann bannar hermönnum sínum að ráðast á gyðinga en er handtekinn fyrir tilskipun Hynkels og gerist síðan tryggur bandamaður rakarans. Hann hjálpar rakaranum síðar að þykjast vera Hynkel til þess að bjarga Osterlich.
  • Henry Daniell sem Garbitsch, skopstæling á Joseph Goebbels,[9] hinn tryggi og yfirvegaði innanríkis- og áróðursmálaráðherra Hynkels.
  • Billy Gilbert sem Herring, skopstæling á Hermann Göring,[9] og stríðsmálaráðherra Hynkels. Hann stýrir sýnikennslum á nýþróuðum vopnum, sem bregðast yfirleitt og vekja reiði Hynkels.
  • Grace Hayle sem frú Napaloni, eiginkona Benzino sem dansar síðar við Hynkel. Á Ítalíu voru öll atriði með henni ritskoðuð til ársins 2002 af virðingarskyni við ekkju Benito Mussolini, Rachele.
  • Carter DeHaven sem Spook, bakteríski sendiherrann.

Aðrir leikarar

[breyta | breyta frumkóða]

Aðrir leikarar í myndinni eru Esther Michelson(fr), Florence Wright, Eddie Gribbon, Robert O. Davis, Eddie Dunn, Nita Pike og Peter Lynn.

Leiksýning

[breyta | breyta frumkóða]

Árið 2018 sýndi Þjóðleikhúsið á Íslandi leikgerð af Einræðisherranum í leikstjórn danska leikstjórans Nikolaj Cederholm, sem hafði áður stýrt uppsetningu verksins í Nörrebro-leikhúsinu í Kaupmannahöfn. Sigurður Sigurjónsson lék þar bæði rakarann og Adenoid Hynkel.[10]

Tilvísanir

[breyta | breyta frumkóða]
  1. ↑ „The Great Dictator (PG)“. British Board of Film Classification. 9. desember 1940. Sótt 6. september 2024.
  2. ↑ „UA Meeting“. Variety. 20 nóvember 1940. bls. 20.
  3. ↑ Friedman, Barbara G. (2007). From the Battlefront to the Bridal Suite: Media Coverage of British War Brides, 1942–1946. University of Missouri Press. ISBN 978-0-8262-1718-9. „Charlie Chaplin's 1940 film The Great Dictator, satirizing Hitler and Nazism, grossed $5 million worldwide and became a classic.“ [Kvikmynd Chaplins frá 1940, Einræðisherrann, sem deildi á Hitler og nasismann, halaði inn fimm milljónum dala á heimsvísu og varð sígilt verk.]
  4. ↑ Branagh, Kenneth (framsögumaður) (2002). Chaplin and Hitler: The Tramp and the Dictator (sjónvarp). BBC. Sótt 28. desember 2020.
  5. ↑ "Films Selected to The National Film Registry, 1989–2010". Library of Congress. Skoðað 27. mars 2026.
  6. ↑ „New to the National Film Registry (December 1997) – Library of Congress Information Bulletin“. www.loc.gov. Sótt 23 júní 2020.
  7. ↑ Chaplin, Charlie (1964). My Autobiography. New York: Simon and Schuster. bls. 392. „Had I known of the actual horrors of the German concentration camps, I could not have made The Great Dictator, I could not have made fun of the homicidal insanity of the Nazis.“ [Ef ég hefði vitað um hinn raunverulega hrylling þýsku útrýmingarbúðanna hefði ég ekki gert Einræðisherrann, ég hefði ekki gert gys að morðæði nasistanna.]
  8. ↑ "The film that dared to laugh at Hitler". BBC Culture. Retrieved December 31, 2021.
  9. 1 2 3 4 Pfieffer, Lee. „The Great Dictator“. Encyclopædia Britannica. Sótt 26 janúar 2013.
  10. ↑ Guðrún Sóley Gestsdóttir (23. desember 2018). „Einræðisherrann á alltaf erindi“. RÚV. Sótt 27. mars 2026.