Einfaldur hnútur
Útlit
Einfaldur hnútur (stundum kallaður rembihnútur, en það getur átt við um alla illleysanlega hnúta) er einfaldur hnútur og yfirleitt sá fyrsti sem fólk lærir. Hann er líka grunnur undir marga aðra hnúta, eins og slaufu, hálfstikk og blóðhnút. Einfaldur hnútur er gerður með því að gera lykkju með einum enda, fara með endann yfir bandið og gegn um lykkjuna. Hnúturinn er mjög öruggur og erfitt getur verið að leysa hann. Hann er oft hnýttur á endann á bandi til að koma í veg fyrir að það rakni upp eða sem stopphnútur.