Distributed Proofreaders
Útlit
Distributed Proofreaders (íslenska: dreifðir prófarkalesarar; skammstöfun: DP) er sjálfboðaliðaverkefni sem miðar að því að koma prentuðu máli á stafrænt form, meðal annars fyrir Project Gutenberg.
DP var stofnað árið 2000 af Charles Frankcs til að styðja við stafræna yfirfærslu bóka sem voru ekki háðar hugverkarétti. Í dag er Distributed Proofreaders (DP) helsta auðlind PG á sviði stafrænna bóka.
Allir prófarkalesarar, stjórnendur, forritarar og aðrir eru sjálfboðaliðar.
Ferill hvers titils er eftirfarandi:
- Myndir af blaðsíðum fengnar, skannaðar inn eða fengnar annar staðar frá
- Síðurnar ljóslesnar
- Hver síða prófarkalesin, texti borinn saman við mynd af síðu, þetta er gert að minnsta kosti tvisvar fyrir hverja síðu af mismunandi sjálfboðaliðum
- Eftirvinnsluaðili tekur við prófarkalesnum textaskjölum og smíðar eitt samfellt textaskjal, og að auki oftast vefsíðu, með myndum ef við á
- Samfelldu skjölin yfirfarin af eftirlitsaðila
- Ef verkið reyndist vera í lagi er það birt á Project Gutenberg og/eða annar staðar eftir því sem við á.
Mörg íslensk verk fara í gegnum þetta verkefni, sjá tenglalista að neðan.