Atli Gíslason
Útlit
Atli Gíslason (AtlG) | |
| |
Fæðingardagur: | 12. ágúst 1947 |
---|---|
Þingsetutímabil | |
2007-2009 | í Suður fyrir Vg |
2009-2011 | í Suður fyrir Vg ✽ |
2011-2013 | í Suður fyrir Óháður |
✽ = stjórnarsinni | |
Tenglar | |
Æviágrip á vef Alþingis |
Atli Gíslason var íslenskur stjórnmálamaður og er fyrrum Alþingismaður. Hann lærði lögfræði við Háskóla Íslands, fór svo í framhaldsnám í Osló og í Kaupmannahöfn. Hann varð héraðsdómslögmaður árið 1979 og hæstaréttarlögmaður tíu árum síðar. 21. mars 2011 sagði Atli sig úr þingflokki Vinstri grænna vegna foringjaræðis á Alþingi.[1]
Maki Atla er Rannveig Sigurðardóttir, tjónafulltrúi. Hann á sjálfur þrjú börn, Jón Bjarna, Gísla Hrafn og Friðrik, og eina fósturdóttur, Guðrúnu Ernu.
Heimildaskrá
[breyta | breyta frumkóða] Þetta æviágrip sem tengist stjórnmálum er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.