Annie Jump Cannon
Annie Jump Cannon | |
---|---|
Fædd | 11. desember 1863 |
Dáin | 13. apríl 1941 (77 ára) Cambridge, Massachusetts, Bandaríkjunum |
Menntun | Wellesley-háskóli Radcliffe-háskóli |
Störf | Stjörnufræðingur |
Verðlaun | Henry Draper-verðlaunin (1931) |
Annie Jump Cannon (11. desember 1863 – 13. apríl 1941) var bandarískur stjörnufræðingur sem gegndi lykilhlutverki í nútímaflokkun stjarna með skráningarvinnu sinni. Ásamt Edward C. Pickering er hún viðurkennd sem hönnuður Harvard-flokkunarkerfisins, sem var fyrsta alvarlega tilraunin til þess að flokka stjörnur á grundvelli hitastigs og litrófs. Hún var næstum heyrnarlaus út feril sinn. Cannon var súffragetta og meðlimur í bandarísku kvenréttindahreyfingunni National Women's Party.[1]
Einkalíf
[breyta | breyta frumkóða]Annie Jump Cannon fæddist þann 11. desember árið 1863 í Dover, Delaware. Hún var elst þriggja dætra Wilsons Cannon, sem var skipasmiður og ríkisþingmaður í Delaware, og annarrar konu hans, Mary Jump. Móðir Cannons kenndi henni stjörnumerkin á æskuárum hennar og hvatti dóttur sína til þess að fylgja sínum eigin áhugamálum. Hún stakk upp á því við Annie að sækja nám í stærðfræði, efnafræði og líffræði í Wellesley-háskóla. Cannon og móðir hennar fóru gjarnan upp á háaloft og lærðu að þekkja stjörnurnar með hjálp gamallar kennslubókar í stjörnufræði.[2] Móðir Cannons kenndi henni einnig að skipuleggja heimilisfjármál, en Cannon átti síðar eftir að nota þá kunnáttu til að skipuleggja rannsóknir sínar.[3]
Cannon fór að ráðum móður sinnar og ákvað að fylgja ástræðu sinni fyrir stjörnufræði. Cannon varð fyrir heyrnarskerðingu einhvern tíma í æsku eða snemma á fullorðinsárum sínum. Heimildum kemur ekki saman um hvað olli heyrnarskerðingu hennar, en stundum hefur skarlatssótt verið kennt um hana.[4] Því hefur verið haldið fram að heyrnarleysi Cannons hafi gert henni erfitt fyrir í félagsaðstæðum og því hafi hún sökkt sér í vinnu sína. Cannon giftist aldrei og eignaðist engin börn.
Menntun
[breyta | breyta frumkóða]Í Wilmington-háskóla (sem nú heitir Wesley-háskóli) þótti Cannon efnilegur nemandi, sérstaklega í stærðfræði. Árið 1880 hóf Cannon nám í Wellesley-háskóla í Massachusetts, einum af bestu kvennaháskólum í Bandaríkjunum. Í Wellesley-háskóla nam hún eðlisfræði og stjörnufræði. Meðal kennara hennar var Sarah Frances Whiting, einn af fáum kvenkyns eðlisfræðingum í Bandaríkjunum á þeim tíma. Cannon útskrifaðist með gráðu í eðlisfræði árið 1884 og var dúx í sínum árgangi. Eftir útskrift sneri hún aftur heim til Delaware og bjó þar næsta áratuginn.
Á næstu árum fór Cannon að leggja fyrir sig ljósmyndun, sem þá var ný listgrein. Árið 1892 ferðaðist hún í gegnum Evrópu og tók myndir með Blair-myndavélinni sinni. Eftir að hún kom heim gaf myndavélaframleiðandinn Blair Company myndir hennar frá Spáni út í bæklingi sem nefndist „Í fótspor Kólumbusar“ og lét dreifa honum sem minjagrip á Kólumbusarsýningunni í Chicago árið 1893.[5]
Stuttu síðar fékk Cannon skarlatssótt sem leiddi til þess að hún varð næstum heyrnarlaus.[4] Heyrnarmissir Cannons gerði henni enn erfiðara fyrir að fóta sig í félagslífinu og því tileinkaði hún líf sitt vinnunni sem aldrei fyrr. Árið 1894 dó móðir Cannons og heimilislífið varð erfiðara. Cannon skrifaði fyrrverandi kennara sínum við Wellesley-háskóla, prófessor Sarah Frances Whiting, og spurði hvort til væri laus staða við háskólann. Whiting réð hana sem aðstoðarkennara í eðlisfræði við skólann. Þetta tækifæri gerði Cannon kleift að taka námskeið á háskólastigi í eðlisfræði og stjörnufræði. Whiting varð Cannon einnig hvatning til þess að læra um litrófsgreiningu.
Til að fá aðgang að betri sjónauka skráði Cannon sig í Radcliffe-háskóla sem „sérstakur nemandi“ og hélt þar áfram stjörnufræðinámi sínu.[6] Radcliffe-háskólinn var til staða nálægt Harvard-háskóla til þess að kennarar við Harvard gætu endurtekið fyrirlestra sína fyrir kvenstúdentana í Radcliffe. Nálægðin við Harvard gerði Cannon kleift að nýta sér stjörnuskoðunarstöð Harvard-háskólans. Árið 1896 réði Edward C. Pickering Cannon sem aðstoðarmann sinn við stjörnuathugunarstöðina. Árið 1907 lauk Cannon námi og fékk meistaragráðuna sína frá Wellesley-háskólanum.[4]
Starfsferill
[breyta | breyta frumkóða]Árið 1896 réði Pickering Cannon ásamt öðrum konum til þess að ljúka við Henry Draper-flokkunarkerfið, með það að markmiði að kortleggja og skilgreina hverja stjörnu á himni að ljósmyndamagni í kringum 9.[8] Í skýringum Cannons vísaði hún til birtustigs sem „Int“ sem var stytting á orðinu „intensity“ eða styrkleiki.[9] Cannon var svo fljótvirk í þessu starfi að Pickering sagði um hana og störf hennar: „Ungfrú Cannon er eina manneskjan í heiminum – karl eða kona – sem getur unnið þetta verk svo fljótt.“[10]
Seinni æviár og dauði
[breyta | breyta frumkóða]Ferill Annie Jump Cannons í stjörnufræði spannaði meira en 40 ár fram að starfslokum hennar árið 1940.[8] Þrátt fyrir að hafa formlega sest í helgan stein hélt hún áfram að starfa við stjörnufræði í stjörnuathugunarstöðinni allt þar til aðeins nokkrum vikum áður en hún dó.[11] Á ferli sínum hjálpaði Cannon konum að öðlast viðurkenningu og virðingu innan vísindasamfélagsins. Rólegt og vinnusamt viðhorf hennar og hegðun hjálpaði henni að öðlast virðingu í gegnum ævi sína og starfsferill hennar ruddi braut kvenna í stjörnufræði eftir hennar dag.
Cannon dó þann 13. apríl 1941 í Cambridge, Massachusetts, 77 ára gömul.[12] Hún dó á spítalanum eftir að hafa verið veik í meira en mánuð.[11][13] Frá árinu 1934 hefur Bandaríska stjörnufræðifélagið gefið kvenkyns stjörnufræðingum Annie Jump Cannon-verðlaunin árlega fyrir framúrskarandi störf í stjörnufræði.[14]
Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ „Brooklyn Museum: Annie Jump Cannon“ (enska). Brooklyn Museum. Sótt 26. febrúar 2019.
- ↑ „History of Women in Astronomy: Annie Cannon“ (enska). Astronomical Society of the Pacific. Sótt 26. febrúar 2019.
- ↑ „Girl Star-Gazer Now Specialist“ (enska). Statesville Record and Landmark. 19. nóvember 1928. Sótt 26. febrúar 2019.
- ↑ 4,0 4,1 4,2 „Annie Cannon“ (enska). She is an Astronomer. 2014. Sótt 26. febrúar 2019.
- ↑ „Annie Jump Cannon (1863–1941) – Early life“ (enska). Wellesley College. 23. júlí 2006. Sótt 26. febrúar 2019.
- ↑ John Dvorak. „The Women Who Created Modern Astronomy“. Sky and Telescope. , 2013: 28–33. .
- ↑ „Annie Jump Cannon (1863–1941), sitting at desk“ (enska). Smithsonian Institution Archives. Sótt 26. febrúar 2019.
- ↑ 8,0 8,1 „Annie Jump Cannon“ (enska). Encyclopædia Britannica. Sótt 26. febrúar 2019.
- ↑ „Annie Jump Cannon“ (enska). ancestry.com. 9. mars 2009. Sótt 26. febrúar 2019.
- ↑ Helen Fitzgerald (18. september 1927). „Counted the Stars in the Heavens“ (enska). The Brooklyn Daily Eagle. Sótt 26. febrúar 2019.
- ↑ 11,0 11,1 „Noted Woman of Science Dies“ (enska). Daily Capital Journal. 14. apríl. Sótt 26. febrúar 2019.
- ↑ „Annie Jump Cannon“ (enska). Encyclopedia of World Biography. 2004. Sótt 26. febrúar 2019.
- ↑ „Annie J. Cannon is Dead; Famed as Astronomer“ (enska). Chicago Tribune. 14. apríl 1941. Sótt 26. febrúar 2019.
- ↑ „Annie Jump Cannon Award in Astronomy“ (enska). aas.org. Sótt 26. febrúar 2019.