Abu Mohammad al-Julani
Ahmed al-Sharaa, (f. árið 1982 í Riyadh í Sádi-Arabíu) betur þekktur sem Abu Mohammed al-Jolani (stundum skrifað al-Jawlani eða al-Julani) er sýrlenskur hernaðarleiðtogi Hayat Tahrir al-Sham (HTS), íslamskra stjórnmála- og hernaðarsamtaka.
Julani leiddi skyndisókn HTS og bandamanna þeirra í norðvesturhluta Sýrlands síðla árs 2024 sem leiddi til falls ríkisstjórnar Bashar al-Assad, fyrrverandi forseta Sýrlands, á innan við 2 vikum. [1]
Julani hélt til Íraks árið 2005 til að berjast gegn bandarískum yfirráðum. Hann varð svo leiðtogi Al-Nusra, sem tengdist Al-Kaída í Sýrlandi, árið 2013. Árið 2016 breytti hann nafni samtakanna og sleit tengsl við Al-Kaída. Hann myndaði stjórn HTS í Idlib-héraði í norðvestur-Sýrlandi.
Julani hefur heitið því að virða minnihlutahópa eftir byltinguna í Sýrlandi 2024. [2]
Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ Sýrlenska þjóðin á krossgötum: Hver er Abu Mohammed al-Jolani? Vísir, sótt 9. desember 2024
- ↑ From Syrian jihadist leader to rebel politician: How Abu Mohammed al-Jawlani reinvented himself BBC, sótt 9. desember 2024