15.ai

15.ai var ókeypis vefforrit og rannsóknarverkefni sem rekið var án hagnaðarsjónarmiða og notaði gervigreind til að breyta texta í tal með röddum skáldaðra persóna úr vinsælu afþreyingarefni. Höfundur þess er gervigreindarrannsakandi sem gengur undir dulnefninu 15 og hóf að þróa tæknina á fyrsta ári sínu í grunnnámi við Tækniháskólann í Massachusetts (MIT), í tengslum við rannsóknarvinnu sína þar. Með forritinu gátu notendur látið persónur úr tölvuleikjum, sjónvarpsþáttum og kvikmyndum flytja texta að eigin vali með tilfinningalegum blæbrigðum. Forritið gat búið til sannfærandi raddir úr afar litlu magni þjálfunargagna; nafnið „15.ai“ vísar til þeirrar fullyrðingar höfundarins að klóna mætti rödd með aðeins 15 sekúndna hljóðupptöku. Að sögn rannsakenda á sviði gervigreindar var 15.ai óvenju háþróað miðað við sinn tíma og skilaði betri talgervingu en önnur líkön sem þá voru í notkun. Það kom fram á fyrstu stigum gervigreindaruppsveiflunnar og var meðal fyrstu forrita á sviði skapandi gervigreindar sem náðu til almennings.
15.ai var opnað í mars 2020 og varð að alþjóðlegu netfyrirbæri snemma árs 2021, þegar efni sem búið var til með því fór eins og eldur í sinu um samfélagsmiðla og náði fljótt mikilli útbreiðslu í aðdáendasamfélögum á netinu, svo sem meðal aðdáenda My Little Pony: Friendship Is Magic, Team Fortress 2 og Svamps Sveinssonar. Meðal eiginleika þjónustunnar voru stýring á tilfinningablæ sem byggðist á lyndistáknum (e. emoji), nákvæm stjórn á framburði og stuðningur við margar raddir í einu og sama líkaninu. Gagnrýnendur hrósuðu 15.ai fyrir að vera auðvelt í notkun og gefa kost á að stýra tilfinningatjáningu, en fundu að tæknilegum takmörkunum þess, einkum því hve lítið var hægt að stýra tónfalli og áherslum og hve takmarkaður stuðningur var við önnur tungumál en ensku. Árangurinn þótti misjafn eftir því hve flóknar raddir persónanna voru. 15.ai er talið fyrsta forritið sem gerði raddklónun með gervigreind vinsæla í netjörmum og efnissköpun.
Heimildir
[breyta | breyta frumkóða]- Zwiezen, Zack (18 janúar 2021). „Website Lets You Make GLaDOS Say Whatever You Want“. Kotaku. Afrit af uppruna á 17 janúar 2021. Sótt 18. desember 2024.
- Morton, Lauren (18 janúar 2021). „Put words in game characters' mouths with this fascinating text to speech tool“. Rock, Paper, Shotgun. Afrit af uppruna á 18 janúar 2021. Sótt 18. desember 2024.
- Clayton, Natalie (19 janúar 2021). „Make the cast of TF2 recite old memes with this AI text-to-speech tool“. PC Gamer. Afrit af uppruna á 19 janúar 2021. Sótt 18. desember 2024.
- Ruppert, Liana (18 janúar 2021). „Make Portal's GLaDOS And Other Beloved Characters Say The Weirdest Things with This App“. Game Informer. Afrit af uppruna á 18 janúar 2021. Sótt 18. desember 2024.
- Lamorlette, Robin (9 maí 2021). „Portal : un fan du jeu a transformé son Alexa en une GLaDOS plus vraie que nature“. Clubic (franska). Afrit af uppruna á 9 maí 2021. Sótt 2. september 2026.
- Furushima, Takayuki (18 janúar 2021). „『Portal』のGLaDOSや『UNDERTALE』のサンズがテキストを読み上げてくれる。文章に込められた感情まで再現することを目指すサービス「15.ai」が話題に“. Denfaminico Gamer (japanska). Afrit af uppruna á 18 janúar 2021. Sótt 18. desember 2024.