Fara í innihald

Árásir Bandaríkjanna á Venesúela 2026

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Árásir Bandaríkjanna á Venesúela

Kort af árásunum
Dagsetning3. janúar 2026; fyrir 9 mánuðum (2026-01-03)
Staðsetning
Niðurstaða Nicolás Maduro og Cilia Flores handsömuð og flutt til Bandaríkjanna.
Stríðsaðilar
 Bandaríkin  Venesúela
Leiðtogar
  • Bandaríkin Donald Trump
Nicolás Maduro færður um borð í herskipið USS Iwo Jima.

Þann 3. janúar 2026, réðst bandaríkjaher til atlögu á Venesúela í aðgerð sem kennd er við Operation Absolute Resolve. Herinn gerði árásir á meira en tug skotmarka í norðurhluta landsins, aðallega á herstöðvar og flugvelli. Aðgerðin var sú stærsta sem Bandaríkin hafði íhlutast í frá því að þau steyptu forseta Panama af stóli árið 1989. Í aðdraganda árásanna höfðu Bandaríkin lagt hald á venesúelsk olíuskip og gert árásir á smábáta sem þau töldu standa í fíkniefnainnflutningi. [1]

Forseti landsins, Nicolás Maduro var handsmaður ásamt eiginkonu sinni og þau flutt um borð í herskip. Þaðan var þeim flogið til New York og þau fangelsuð.

Hátt í 60 létust í árásunum og greindi Kúba frá að 32 hermenn þeirra hefðu látist í þeim. [2] Að minnsta kosti 24 líf- og öryggisverðir Maduros létust í árásunum. Einnig létust almennir borgarar. [3] [4]

Varaforseti Venesúela, Delcy Rodríguez, sagði handtökuna vera mannrán. Hún var skipuð forseti landsins eftir aðgerðirnar.[5]

Trump hefur sagt að Bandaríkin taki stjórn yfir landinu og að bandarísk olíufyrirtæki myndu auka framleiðslu olíu í Venesúela en landið er með mestu hráolíulindir heims. [6]

Tilvísanir

[breyta | breyta frumkóða]
  1. ↑ Why has US attacked Caracas and captured Venezuela’s president? The Guardian, sótt 5. janúar 2026
  2. ↑ Cuba says 32 Cuban fighters killed in US raids on Venezuela Al Jazeera, sótt 5. janúar 2026
  3. ↑ Trump truer Venezuelas fungerende president: – Vil betale en høyere pris enn Maduro NRK, sótt 5. janúar 2026
  4. ↑ At least 24 Venezuelan security officers killed in Maduro capture, its military says AP News, sótt 8. janúar 2026
  5. ↑ Venezuela’s New Leader Softens Tone as Trump Threatens Colombia New York Times, sótt 5. janúar 2026
  6. ↑ Trump claims US oil firms could be 'up and running' in Venezuela within 18 months BBC, sótt 6. janúar 2026