Ólafur Ólafsson (kaupsýslumaður)
Ólafur Ólafsson (fæddur 23. janúar 1957) er íslenskur kaupsýslumaður og aðaleigandi skipaflutningafélagsins Samskipa.[1] Hann er jafnframt meðal þeirra sem hlotið hafa dóm í svonefndum hrunmálum, en hefur ávallt haldið fram sakleysi sínu, bæði fyrir íslenskum dómstólum og Mannréttindadómstól Evrópu.[2]
Ólafur var ráðinn forstjóri Samskipa hf. árið 1990. Árið 2003 varð hann starfandi stjórnarformaður Samskipa. Hann kom við sögu í baráttunni um Ker hf. og var í forsvari fyrir Kjalar ehf. sem hafði betur gegn fjárfestingarfélaginu Gretti hf. í baráttunni um félagið.
Ólafur er stjórnarformaður Alfesca og einnig Kjalars invest sem var annar stærsti hluthafi Kaupþings banka. Hann fór fyrir svonefndum S-hóp sem keypti meirihluta í Búnaðarbankanum við einkavæðingu hans 2002.[3]
Í upphafi árs 2007 stofnaði Ólafur, ásamt konu sinni Ingibjörgu Kristjánsdóttur landslagsarkitekt, velgerðarsjóð sem ætlað er að styrkja fátæk börn í Afríku til mennta. Hjónin lögðu fram einn milljarð króna sem stofnfé sjóðsins.
Sumarið 2007 hófust deilur milli Ólafs og nágranna hans í Eyja- og Miklaholtshreppi á Snæfellsnesi, þar sem Ólafur á sumarbústað. Kvörtuðu nágrannarnir undan hávaða frá þyrlu sem Ólafur notar til að ferðast milli Reykjavíkur og sumarbústaðar síns, en hann gaf lítið fyrir kvartanirnar.
Í maí 2009 var svo gerð húsleit í fyrirtækjum í eigu Ólafs og einnig í sumarbústað hans í sambandi við kaup Al Thani á hlut í Kaupþingi.[4]
Ferill
[breyta | breyta frumkóða]Sakaferill
[breyta | breyta frumkóða]Ólafur var, ásamt Hreiðari Má Sigurðssyni, Sigurði Einarssyni og Magnúsi Guðmundssyni, sakfelldur fyrir Hæstarétti þann 12. febrúar 2015 fyrir sinn þátt í Al-Thani-málinu og dæmdur í fjögurra og hálfs árs fangselsi. Ólafur hóf afplánun dómsins þann 24. febrúar 2015.[5]
Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ „Olafur Olafsson, Samskip Holding BV: Profile and Biography“. Bloomberg.com (enska). Sótt 28. september 2021.
- ↑ „Ólafur Ólafsson vísar Al-Thani málinu til Mannréttindadómstóls Evrópu“. Kjarninn. 13. febrúar 2015. Sótt 28. september 2021.
- ↑ „Búnaðarbankinn seldur S-hópnum“. Söluferli. 8. desember 2016. Afrit af upprunalegu geymt þann 28. september 2021. Sótt 28. september 2021.
- ↑ „Leitað í sumarhúsi Ólafs Ólafssonar“. 24. maí 2009.
- ↑ „Munu hefja afplánun í Hegningarhúsinu“. 13. febrúar 2015.
Tenglar
[breyta | breyta frumkóða]- Ólafur Ólafsson; af Hvítbók.vg
- Stofnun velgerðarsjóðs; af RÚV.is
- Koma Elton John til Ísland í tilefni af afmæli Ólafs; af Mbl.is
- Flýgur á 150 milljóna þyrlu; grein í Fréttablaðinu 4. júlí 2007[óvirkur tengill]
- Ólafur segir engan hagnað hafa runnið til sín; af Mbl.is
- Mun skipta miklu máli fyrir Kaupþing; af Mbl.is
- Milljarðalán án áhættu; af Mbl.is
- Unnið úr leitinni; af Mbl.is
- Ólafur hefur það gott í sveitinni; af Hvítabókinni.vg
- Auðmaður gefur Rauða krossinum peninga til að sinna sálrænum erfiðleikum í kreppunni; af Eyjunni.is 2009 Geymt 3 júní 2009 í Wayback Machine
- Auðmaður krefst 188 milljarða; grein í DV 8. jan. 2009[óvirkur tengill]
- Sleppur við 64 milljarða skuld; grein í DV 2011 Geymt 13 október 2011 í Wayback Machine
- Ólafur Ólafsson yfirheyrður hjá sérstökum saksóknara